Heimild: BBC
West Bromwich Albion hefur lagt fram tilboð í Boaz Myhill markvörð Hull City.
Talið er að tilboðið hljóði upp á 1,5 milljónir punda en WBA vill fá Myhill til að berjast við Scott Carson um markvarðarstöðuna.
Talið er að tilboðið hljóði upp á 1,5 milljónir punda en WBA vill fá Myhill til að berjast við Scott Carson um markvarðarstöðuna.
,,Við fengum formlegt tilboð í dag og það er verið að íhuga það," sagði Adam Pearson yfirmaður fótboltamála hjá Hull við BBC í gær.
Myhill, sem er 27 ára, hefur leikið 277 leiki með Hull síðan hann kom til félagsins frá Aston Villa á 50 þúsund pund árið 2003.



