Heimild: BBC
Marlon King, fyrrum framherji Wigan, losnaði í gær úr fangelsi eftir að hafa afplánað dóm fyrir líkamsárás og kynferðislega áreitni.
King, sem er þrítugur, var dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi í október síðastliðnum eftir að hann réðst á tvítuga stúlku í desember árið 2008.
King er nú laus úr fangelsi og Tony Finnigan umboðsmaður hans ætlar að finna nýtt félag fyrir leikmanninn.
Dave Whelan, fyrrum formaður Wigan, segist einnig vera búinn að fyrirgefa leikmanninum en hann lét hafa eftir sér á síðasta ári að King ætti ekki að fá að spila fótbolta aftur.


