Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 29. júlí 2010 22:38
Sigmann Þórðarson
Umfjöllun: KR-ingar í úrslit í 16. sinn
Rauða spjaldið sem fór á loft og lék lykilhlutverk í leiknum.
Rauða spjaldið sem fór á loft og lék lykilhlutverk í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ástæða rauða spjaldsins, dæmi hver fyrir sig.
Ástæða rauða spjaldsins, dæmi hver fyrir sig.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR 4 - 0 Fram
1-0 Óskar Örn Hauksson
2-0 Grétar Sigfinnur Sigurðsson
3-0 Björgólfur Takefusa
4-0 Björgólfur Takefusa

Það verða KR-ingar sem mæta FH í úrslitaleik Visa-bikarsins þann 14. ágúst eftir öruggan sigur gegn Fram í Frostaskjólinu í kvöld. Leikurinn var jafn framan af en eftir að gestirnir misstu mann að leikvelli eftir hálftíma leik snérist dæmið við.

KR-ingar náðu þá taki á leiknum sem þeir slepptu aldrei og uppskáru á endanum 4-0 öruggan sigur og komust þar með í úrslit í 16. sinn en þeir hafa unnið bikarinn í ellefu af þeim tilraunum.

Það voru Framarar sem byrjuðu leikinn af meiri krafti og áttu fyrsta færi leiksins. Þá Skaut Jón Guðni Fjóluson boltanum yfir markið eftir að boltinn hafði borist til hans eftir vægast sagt slaka aukaspyrnu sem tekin var rétt fyrir utan teig heimamanna.

Stuttu síðar fékk Almarr Ormarsson sendingu inn fyrir vörn KR en Lars Ivar Moldsked náði að bægja þeirri hættu frá með góðu úthlaupi.

KR-ingar komust svo rólega meira og meira inn í leikinn en fyrsta skot þeirra kom eftir um tuttugu mínútna leik en það átti Bjarni Guðjónsson sem skaut boltanum í fyrstu snertingu eftir að varnarmenn Framara reyndu að hreinsa frá.

Vendipunktur leiksins kom síðan eftir um hálftímaleik. KR-ingar hreinsuðu þá langt fram völlinn og upp hófst kapphlaup milli Kristjáns Haukssonar og Guðjóns Baldvinssonar sem endaði með því að Guðjón náði að pota boltanum áfram en Kristján sparkaði í tómt og við það féll Guðjón sem var að sleppa í gegn og Gunnar Jarl átti því ekki um annað að velja en að vísa honum af leikvelli.

Eftir brottvísunina lifnuðu KR-ingar við og þá sérstaklega Óskar Örn Hauksson sem átti á sttum tíma tvö hættuleg skot og var þeirra hættulegasti maður.

Vörn Framara riðlaðist við brottvísun Kristjáns. Jón Orri Ólafsson átti í erfiðleikum með að hreinsa frá markinu sem varð til þess að Baldur Sigurðsson vann boltann og renndi honum á Guðjón Baldvinsson sem þurfti að teygja sig full mikið og setti boltann í hliðarnetið.

Fyrsta mark leiksins kom síðan skömmu fyrir hálfleik en þá sótti Skúli Jón upp að endamörkum og renndi boltanum fyrir markið þar sem Óskar Örn kom aðvíðandi og rak löppina í boltann sem lak inn við nærstöngina.

Síðari hálfleikur var algjörlega í eigu heimamanna. Guðjón Baldvinsson fékk fyrsta færi hálfleiksins er hann fékk háa sendingu á fjærstöng en skot hans fór framhjá markinu. Guðjón átti svo stuttu seinna sendingu inn á teiginn þar sem Baldur Sigurðsson kom á fleygiferð en skallaði boltann framhjá markinu.

Eftir klukkutíma leik juku heimamenn svo við forystuna er Grétar Sigfinnur skoraði með skalla eftir hornspyrnu Óskars Arnar.

Björgólfur Takefusa kom heimamönnum í þægilega stöðu með marki eftir aukaspyrnu Tíu mínútum síðar. Óskar Örn renndi þá boltanum aftur fyrir sig úr spyrnunni þar sem Björgólfur var staðsettur og þrumaði boltanum í gegnu teiginn og í fjærhornið.

Björgólfur gerði svo endanlega út um leikinn með öðru marki sínu eftir óvenju létt leikinn dans Baldurs Sigurðssonar framhjá varnarmönnum Framara. Baldur renndi síðan boltanum fyrir markið þar sem Björgólfur var réttur maður á réttum stað.

Niðurstaðan var því afgerandi sigur heimamanna sem komust því í úrslitaleikinn þann 14. ágúst nk. og spila þá við Íslandsmeistara FH. Framarar sitja hins vegar eftir með sárt ennið en hafa Verslunarmannahelgina til að rífa sig upp fyrir komandi átök í deildinni.
Slapp
banner
banner
banner