Tveir leikir fóru fram í 1. deild kvenna í vikunni. Selfoss heldur uppteknum hætti og vinnur sína leiki. Í þetta sinn urðu fórnarlömbin lið Fram sem þurfti að sætta sig við 6-1 tap. Að venju er erfitt að nálgast upplýsingar um leiki í deildinni þar sem leikskýrslum er skilað seint og illa af félögunum. Hér að neðan er það sem við vitum.
Guðmunda Brynja Óladóttir og Katrín Ýr Friðgeirsdóttir skoruðu tvö mörk hvor, Anna María Friðgeirsdóttir eitt og því miður höfum við ekki upplýsingar um einn af markaskorurum Selfoss. Bergþóra Baldursdóttir skoraði mark Fram.
Í hinum leiknum burstaði Keflavík lið Álftanes 7-0 en því miður höfum við ekki markaskorara úr þeim leik.

Selfoss 6-1 Fram:
0-1 Bergþóra Baldursdóttir ('9)
1-1 Anna María Friðgeirsdóttir ('40)
2-1 Guðmunda Brynja Óladóttir ('43)
3-1 Katrín Ýr Friðgeirsdóttir ('51)
4-1 Katrín Ýr Friðgeirsdóttir ('71)
5-1 Guðmunda Brynja óladóttir ('90)
6-1 (Markaskorara vantar)
Keflavík 7-0 Álftanes:
(Markaskorara vantar)
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |