Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 30. júlí 2010 12:25
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Puyol líkir Fabregas við fanga hjá Arsenal
Carles Puyol fyrirliði Barcelona segir að Arsenal sé að halda Cesc Fabregas hjá félaginu gegn eigin vilja leikmannsins. Fabregas hefur verið sterklega orðaður við Barcelona í sumar og er óhætt að segja að Katalóníuliðið hafi beitt lúalegum brögðum til að reyna að fá leikmanninn til sín.

Allir leikmenn Börsunga hafa gefið það út hversu velkominn Fabregas yrði og auk þess hefur félagið lýst því yfir trekk í trekk að þeir vilji að þessi öflugi miðjumaður snúi aftur á heimaslóðir.

Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal hefur staðið fast á sínu og sagt að leikmaðurinn verði um kyrrt í Lundúnum en Puyol hefur nú bæst í hóp þeirra sem reyna að komast inn í hausinn á Fabregas.

„Hann neyðist til að vera um kyrrt í heilt ár í viðbót hjá félagi sem hann langar að yfirgefa,” sagði Puyol við The Sun.

„Ég spyr mig hversu gáfulegt það er að berjast fyrir að halda leikmanni sem vill ekki vera um kyrrt. Eftir að hafa þjónað félaginu frábærlega í sjö ár hefði ég haldið að Arsenal myndi leyfa honum að láta drauma sína rætast.”

„Cesc hefur gefið allt sitt til Arsenal og reynt að vinna bikar með félaginu en þeir hafa ekki staðist væntingar hans. Ég segi kannski ekki að hann sé í fangelsi, þar sem við fótboltamenn njótum mikla forréttinda, en ég hefði haldið að Arsenal hefði leyft honum að fara til Barcelona þegar þeir sáu hversu augljóslega hann vill fara.”

„Við (hjá Barcelona) héldum allir að hann myndi koma í sumar, en Arsenal hefur neitað þvi að ræða við okkur og við þurfum að bíða í annað ár þar til Cesc kemur heim.”

„Hann er allt of góður gaur til að segja það opinberlega en staðreyndin er sú að hann hefur engan áhuga á því að vera hjá Arsenal á þessu tímabili. Hjarta hans er nú þegar í Barcelona, jafnvel þó við þurfum að bíða í eitt ár í viðbót eftir líkama hans.”

„Við vitum að hann kemur á næsta tímabili. Barcelona hefur heilt ár til að komast að samkomulagi. Hann er nógu mikill atvinnumaður til að eiga frábært tímabil því hann ber líka mikla virðingu fyrir stuðningsmönnum Arsenal.”

„En hver sá sem reynir að sannfæra sjálfan sig um að hann hafi viljað vera um kyrrt hjá Arsenal hefur rangt fyrir sér.”

Slapp
banner