Valur 0 - 0 Grindavík
Valur tók á móti Grindavík í 15 umferð pepsí deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Valsmenn sátu fyrir leikinn í 7 sæti deildarinnar en þeir höfðu fyrir leikinn í kvöld ekki unnið leik í tæpa tvo mánuði eða frá 14 júní og fyrir leikinn í kvöld höfðu Valsmenn ekki haldið hreinu í 21 leik í röð. Grindvíkingar sátu aftur á móti í 10 sæti deildarinnar og höfðu ekki tapað leik frá 4 júlí en þeir hafa gert mikið af jafnteflum.
Leikurinn í kvöld var langt frá því að vera skemmtilegur og var fyrri hálfleikurinn sérstaklega leiðinlegur á að horfa.
Þó áttu bæði lið einhver færi í þeim fyrri en Grindvíkingarnir voru ákveðnari og voru sendingar þeirra virkilega flottar margar hverjar. Hafþór Ægir Viljálmsson átti til að mynda frábæra sendingu á 3 mínútu fyrir mark Vals og þar var Gilles Ondo nálægt því að komast í boltann en náði því ekki.
Orri Freyr Hjaltalín átti svo flotta sendingu á Scott Ramsey inn í teig Vals, Scotty missti boltann frá sér en Hafþór Ægir náði að komast að honum og náði skoti sem fór í hliðarnetið.
Það var mikill doði yfir Valsmönnum flest allan leikinn og náðu þeir ekki að skapa sér mikið af færum og það var ekki mikið sem gerðist í þessum fyrri hálfleik af þeirra hálfu, það var ekki fyrr en á 45 mínútu að þeir áttu tvær hættulegar spyrnur að marki Grindvíkinga en Óskar Pétursson markmaður Grindvíkinga varði vel.
Valsmenn byrjuðu seinni hálfleikinn með mikilli pressu og voru fyrstu mínúturnar með alla sína leikmenn nema Kjartan markmann á vallarhelmingi Grindvíkinga. En það skilaði litlu sem engu fyrir þá, enda fór það þannig að eftir um það bil 15 mínútur af seinni hálfleik náðu Grindvíkingar öllum völdum á vellinum.
Scott Ramsey tók aukaspyrnu á 59 mínútu, sendingin var virkilega flott fyrir mark Vals og þar náði Ray Anthony Jónsson að skalla boltann en náði ekki að stýra stefnu boltans og boltinn fór yfir markið.
Grindvíkingar voru svo aftur á ferðinni þrem mínútum síðar þegar þeir voru komnir þrír á móti tveimur en sending Ondo á Scotty var slök. Illa var þar farið með gott færi.
Grétar Ólafur Hjartarson sem kom inn á sem varamaður var síðan nálægt því á 74 mínútu að skora er hann fékk boltann inn í teig en skotið hans var ekki nógu fast og Kjartan varði vel.
Grétar var aftur á ferðinni á 84 mínútu og þá fékk hann sannkallað dauðafæri er Alexander Magnússon sem einnig hafði komið inná sem varamaður sendi boltann inn á Grétar sem var í teignum og munaði millimetrum að Grétar kæmi boltanum í markið en Greg Ross varnarmaður Vals var vel á verði og náði að komast í veg fyrir Grétar og hreinsaði frá.
Alexander var svo á ferðinni aðeins 4 mínútum seinna þegar hann náði flottu skoti sem fór rétt framhjá.
Þóroddur Hjaltalín jr dómari leiksins flautaði svo leikinn af skömmu síðar og máttu Valsmenn anda léttar eftir að hafa náð jafntefli og ekki síður að ná að halda hreinu. Grindvíkingar hljóta aftur á móti að naga sig í handarbökin yfir því að ná ekki að skora.
Lið Vals: Kjartan Sturluson, Stefán Jóhann Eggertsson, Martin Pedersen, Atli Sveinn Þórarinsson, Greg Ross, Sigurbjörn Hreiðarsson, Baldur Aðalsteinsson, Jón Vilhelm Ákason, Rúnar Már Sigurjónsson, Arnar Sveinn Geirsson, Diarmuid O´Carroll
Varamenn: Ásgeir Þór Magnússon, Einar Marteinsson, Guðmundur Steinn Hafsteinsson, Ian Jeffs, Edvarð Börkur Óttarsson, Magnús Örn Þórsson, Þórir Guðjónsson.
Lið Grindavíkur: Óskar Pétursson, Ray Anthony Jónsson, Auðunn Helgason, Jóhann Helgason, Scott Ramsey, Orri Freyr Hjaltalín, Loic Mbang Ondo, Ólafur Örn Bjarnason, Gilles Daniel Mbang Ondo, Jósef Kristinn Jósefsson, Hafþór Ægir Viljálmsson.
Varamenn: Rúnar Dór Daníelsson, Óli Baldur Bjarnason, Gjorgi Manevski, Matthías Örn Friðriksson, Guðmundur Andri Bjarnason, Grétar Ólafur Hjartarson, Alexander Magnússon
Dómari: Þóroddur Hjaltalín jr. ( ágætur)
Aðstæður: Frábærar. Lítill vindur og sól, 867 áhorfendur
Maður leiksins: Scott Ramsey


