Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 13. ágúst 2010 22:25
Jón Stefán Jónsson
Umfj.: Allt vitlaust vegna slakrar dómgæslu í jafntefli Þórs og ÍA
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld.
Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Guiseppe P Funicello og Ragnar Leósson í baráttunni.
Guiseppe P Funicello og Ragnar Leósson í baráttunni.
Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Jóhann Helgi Hannesson á sprettinum.
Jóhann Helgi Hannesson á sprettinum.
Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Þór 2-2 ÍA:
0-1 Hjörtur Hjartarson (víti)
0-2 Gary Martin
1-2 Sveinn Elías Jónsson
2-2 Sveinn Elías Jónsson
Rautt spjald: Sveinn Elías Jónsson ('96)

Það voru ekki lið Þórs og ÍA sem léku aðalhlutverkin í leik liðanna á Þórsvellinum í Þorpinu á Akureyri í kvöld heldur dómari leiksins Gunnar Sverrir Gunnarsson sem hafði aldrei tök á leiknum svo vægt sé til orða tekið. Hafa skal þó í huga að leikurinn var gríðarlega erfiður að dæma en hefði þetta verið próf er svo sannarlega óhætt að segja að Gunnar hafi fallið á því. Ekki bætti úr skák þegar annar af aðstoðardómurum, Einar Sigurðsson neitaði að taka í hönd Jóhanns Helga Hannessonar, leikmanns Þórs eftir leik.

Í upphafi skyldi endinn skoða og það er það sem gert verður í þessari grein. Því eftir leik Þórs og ÍA í kvöld var allt hreinlega á suðupunkti vegna dómgæslu Gunnars Sverris Gunnarssonar og voru það heimamenn sem voru sérstaklega ósáttir enda dæmdi Gunnar á þá tvö hræódýr víti, gaf þeim 5 gul spjöld á meðan leiknum stóð og þar af fjögur þeirra á síðustu mínútum leiksins, auk þess sem Sveinn Elías Jónsson fékk brottvísun eftir leik. Flest spjaldanna voru fyrir mótmæli sem eiga auðvitað aldrei að eiga sér stað en þau gætu reynst Þórsurum dýr því bæði Jóhann Helgi Hannesson og Sveinn Elías Jónsson fara í leikbann vegna spjalda sinna.

Skagamenn voru heldur rólegri en langt frá því að vera sáttir því þeir fengu fjögur gul spjöld, sum hver fyrir litlar sakir.

Mikil mildi var að öryggisgæslan var góð eftir leik því nánast allir þeir 700 áhorfendur sem mættu á leikinn stóðu eftir til að láta Gunnar Sverri fá það óþvegið á leið sinni til búningsklefa. Sem betur fer lét fólk sér þó nægja að öskra og ekki kom til handalögumála.

Það vakti sérstaklega athygli blaðamanns þar sem hann stóð að taka viðtöl varð hann vitni að því að aðstoðardómari leiksins neitaði að taka í hönd Jóhanns Helga Hannessonar eftir leik og var greinilega ósáttur við framgöngu Jóhanns í leiknum. Hafa ber í huga að Jóhann var vissulega ekki eins og engill í leiknum en hann gerði samt ekki meira af sér en svo að hann fékk enga brottvísun. Því verður að teljast undarlegt að aðstoðardómarinn hafi ekki séð ástæðu til að taka í hönd hans.

Enn þá loksins að leiknum sjálfum. Þórsarar byrjuðu hann betur án þess skapa sér nein færi af viti. Skagamenn hins vegar skoruðu fyrsta markið og var þar að verki Hjörtur Hjartarson úr vítaspyrnu sem dæmd var eftir að Atli Jens Albertsson braut á Gary Martin. Brotið virtist vera fyrir utan teig og hafa þeir sem skoðað hafa myndbandsupptökur af leiknum fullyrt að svo sé. Það er því undarlegt að aðstoðardómari hafi ekki séð atvikið og leiðrétt dóm Gunnars, enda erfitt fyrir hann að sjá hvort brotið átti sér stað utan eða innan teigs. Einnig verður að teljast athyglivert að Atli Jens hafi ekki fengið brottvísun þar sem hann var klárlega aftasti varnarmaður Þórs í atvikinu og rændi Skagamenn upplögðu færi.

Ekki löngu síðar eða á 25 mínútu juku Skagamenn forystu sína í 2-0. Gary Martin skoraði þá með skoti af stuttu færi eftir mikinn hamagang í vítateig Þórsara. Markið kom nokkuð gegn gangi leiksins en eftir það voru Skagamenn nokkuð sterkari næstu 10 mínúturnar.

Þórsarar tóku hins vegar öll völd á vellinum síðustu mínútur fyrri hálfleiks og uppskáru mark á þeirri 44. þegar að Sveinn Elías Jónsson skoraði úr þröngu færi á fjærstöng er Jóhann Helgi Hannesson fleytti boltanum til hans eftir innkast Gísla Páls Helgasonar.

Stuttu síðar var flautað til hálfleiks eftir fjörugan fyrri hálfleik þar sem heimamenn voru sterkari aðilinn en Skagamenn ávallt hættulegir í skyndisóknum sínum.

Í síðari hálfleik voru það gestirnir sem hófu leikinn betur og geta heimamenn þakkað markverði sínum, Birni Hákoni Sveinssyni að ÍA hafi ekki gert út um leikinn á fyrstu 20 mínútunum. Á 50. mínútu bjargaði Björn hreint út sagt stórkostlega er hann varði skot sem fór af varnarmanni innan teigs í stöngina, en skotið stefndi efst í markhornið.

Tveimur mínútum síðar bjargaði Björn aftur glæsilega þegar að Hjörtur Hjartarson, sem átti góðan leik í kvöld, komst einn gegn honum en Björn varði skot hans vel.

Á 62. mínutu kom svo vendipunktur leiksins. Gary Martin féll þá inna teigs eftir viðskipti við Atla Jens Albertsson og dæmdi Gunnar Sverrir á einhver óskiljanlegan hátt vítaspyrnu því um augljósan leikaraskap var að ræða hjá Martin. Títt nefnur Björn Hákon gerði sér hins vegar lítið fyrir og varði vítaspyrnu Garys og hélt þar með sínum mönnum inni í leiknum.

Næstu mínúturnar var lítið um færi en á 83. mínútu jöfnuðu heimamenn leikinn þegar Sveinn Elías Jónsson skoraði af stuttu færi eftir góðan undirbúning Atla Sigurjónssonar og Jóhanns Helga Hannessonar. Atli átti fyrirgjöf með jörðinni sem Sveinn setti laglega í markið.

Fullt var af atvikum það sem eftir lifði leiks en þau tengdust þó fæst marktækifærum eða góðri knattspyrnu, heldur frekar aukaspyrnudómum og spjöldum í leik sem dómarinn missti algjörlega úr höndum sér, enda var eflaust gríðarlega erfitt að dæma leikinn því þráðurinn í leikmönnum var stuttur enda mikið undir í leiknum. Leiksins verður hins vegar því miður minnst fremur fyrir dómgæsluna en góðan fótboltaleik. Niðurstaðan var þó að lokum jafntefli sem hvorugt liðið er eflaust sátt við.
Slapp
banner
banner