Trausti Már Valgeirsson sjúkraþjálfari svarar reglulega fyrirspurnum lesenda um algeng meiðsli í fótboltanum og útskýrir málið hér á Fótbolta.net. Trausti svarar í dag nýrri fyrirspurn.
Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].
Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].
Trausti Már útskrifaðist úr Læknadeild Háskóla Íslands með B.sc. gráðu í sjúkraþjálfun árið 2008. Hann hefur 1. september störf sem sjúkraþjálfari hjá Sporthúsinu. Hann hefur unnið mikð með íþróttafólki úr ýmsum greinum eins og til dæmis fótbolta, mótorcrossi, taekwondo og fleira
Sæll,
Hvernig lýsir það sér þegar maður er tognaður aftan í læri og hvernig á að
meðhöndla það er gott að nudda í það og munurinn á rifnum vöðva og tognunum.
fyrirfram takk
Svar Trausta:
Tognun er í raun skilgreining á því hversu mikið vöðvinn er rifinn. Tognunum er almenn skipt niður þrjár gráður tognunar og það fer í raun eftir hversu mikið vöðvinn er rifinn. Við fyrstu gráðu tognum þá eru nokkrir vöðvaþræðir rifnir, við annarrar gráðu tognun þá eru eru fleiri vöðvaþræðir rifnir og vöðvinn rifinn að hálfu og við þriðju gráðu tognun, sem er alvarlegasta tognunin, þá er vöðvinn rifinn að fullu.
Annars bendi ég þér á grein sem ég skrifaði 9.nóvember sl. Um hamstringstognanir, getur séð það á þessari slóð.
Kv.Trausti



