Heimild: BBC
Real Madrid hefur gengið frá kaupum á Mesut Özil miðjumanni Werder Bremen.
Talið er að félögin hafi náð samkomulagi um kaupverð upp á 15 milljónir evra eða um 12,4 milljónir punda.
Özil, sem er 21 árs, sló í gegn með Þjóðverjum á HM í Suður-Afríku fyrr í sumar.
Hann var samningsbundinn Werder Bremen í eitt ár í viðbót en nú er ljóst að hann mun leika með Real Madrid næstu tímabilin.
Özil mun fara í læknisskoðun hjá Real Madrid á morgun áður en gengið verður formlega frá samningum.

