Viktor Unnar Illugason framherji Selfoss á von á erfiðum leik er liðið tekur á móti Keflaví kí kvöld í Pepsi deild karla.
Nýr völlur verður vígður á Selfossi í kvöld en liðið hefur spilað á gervigrasi í allt sumar.
,,Ég á von á hörkuleik og þeir munu líklega koma brjálaðir til leiks. Þeir ætla sér að skemma veisluna fyrir okkar og þurfa þrjú stig ætli þeir sér að vera með í toppbaráttunni, þetta verður hrikalega erfitt," sagði Viktor Unnar í samtali við Fótbolta.net.
,,Við ætlum að sjálfsögðu að fara inn í þennan leik til að vinna eins og öll lið gera þegar þau mæta til leiks. Við þurfum að vinna leiki til að halda okkur í þessari deild svo við setum stefnuna á sigur sérstaklega þar sem þetta er fyrsti alvöru heimaleikurinn í sumar."
Viktor gekk í raðir Selfoss í félagaskiptaglugganum í júlí og líkar vel.
,,Mér líkar mjög vel á Selfossi, strákarnir eru flottir og móarlinn er eins og hann gerist betur. Það er gaman á æfingum svo ég get ekki kvartað yfir neinu."
,,Það er kominn tími á mark hjá mér og ég er svolítið búinn að vera að bíða eftir þessum velli til að gera mitt fyrsta mark. Ég hef verið á æfingum með King Sörens (Sigurjón Jónsson, framherji Augnablks), einhverjum helsta markaskorara Kópavogs og við höfum unnið í því að klára færin. Hann hefur hjálpað mér mikið og ég get því lofað marki í kvöld."
Eins og fyrr segir verður nýr völlur vígður í kvöld og á Viktor von á hörku stemmningu.
,,Ég á ekki von á öðru en að það verði rífandi stemmning í kvöld. Það verður fullt af áhorfendum og það væri hrikalega gaman að vinna," sagði Viktor Unnar að lokum í samtali við Fótbolta.net.


