Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 19. ágúst 2010 21:07
Einar Matthías Kristjánsson
Ótrúlegur sigur Selfyssinga í frábærum leik
Selfyssingar spila á grasvellinum á Selfossi í fyrsta skipti í sumar
Selfyssingar spila á grasvellinum á Selfossi í fyrsta skipti í sumar
Mynd: Guðmundur Fannar Vigfússon
Willum og Þór Hinriks eru mættir galvaskir með sína menn á Selfoss.
Willum og Þór Hinriks eru mættir galvaskir með sína menn á Selfoss.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Selfoss 3- 2 Keflavík
0-1 Magnús Þórir Matthíasson (11)
0-2 Hörður Sveinsson (37)
1-2 Jón Guðbrandsson (48)
2-2 Viktor Unnar Illugason (79)
3-2 Viðar Örn Kjartansson (87)

93.mín: PEEP PEEP PEEP Gunnar Jarl dómari hefur flautað þennan frábæra leik af. Ótrúlegur karakter sigur Selfoss staðreynd á lánlausum Keflvíkingum sem hefðu sannarlega getið unnið á Selfossi líka. Svona á svo sannarlega að vígja nýjan völl. Viðtöl koma á eftir og umfjöllun í kjölfarið á því.

90.mín: Þremur mínútum bætt við og Selfoss afar óheppið að hafa ekki klárað leikinn. Viðar skaut en Lasse varði, Viktor fékk boltann og setti hann í stöngina. Svakaleg spenna á Selfossi núna.

87.mín: MARK SELFYSSINGAR ERU HELDUR BETUR I STUÐI NÚNA, VIÐAR KJARTANSSON VAR AÐ KOMA ÞEIM YFIR Viktor Unnar sendi boltan innfyrir á Viðar Örn sem var kominn einn í gegn og setti boltann í hornið. Nýja stúkan á Selfossi hefur heldur betur tekið við sér núna.

85.mín: Ingi Rafn kemur inná fyrir Sævar Gíslason hjá heimamönnum og Guðmundur Steinarsson fer útaf hjá gestunum og inná kemur Brynjar Guðmundsson

80.mín: Selfyssingar sem hafa verið mun betri hér í seinni hálfleik og voru alltaf líklegir til að ná að jafna.

79.mín:MARK VIKTOR UNNAR ILLA SVALUR Á PUNKTINUM HEFUR JAFNAÐ MEÐ VIPPU Frábærlega tæklað víti hjá Viktori Unnari enda tók hann vippu El Loco style í seinni spyrnunni sinni. Málið var að hann tók góða spyrnu sem hann setti í hornið en var látinn taka hana aftur og ákvað þá að vippa bara á markið og plataði með því Lasse gjörsamlega upp úr skónum.

79.mín: Víti, brotið á Viðari Erni og Lasse Jörgensen má kannski prísa sig sælan með að vera ekki vikið útaf

75.mín: Þá gera Selfyssingar fyrstu skiptinguna í leiknum, Viðar Örn sonur Kjartans Björnssonar sem var í aðalhlutverki hér fyrir leik kemur inn fyrir Arilíus Marteinsson.

72.mín: Góður sprettur hjá Sævari Þór sem kom með góðan bolta fyrir markið sem Viktor Unnar náði ekki til. Það getur allt gerst eins og staðan er núna og næsta mark mun ráða úrslitum. Ég segi næsta mark enda mun klárlega koma a.m.k. eitt mark í viðbót í þennan leik.

68.mín: Hornspyrnu Viktors Unnars eru að verða hættulegri og nú fékk hann boltann aftur og lét skot ríða af sem hafnaði í hliðarnetinu á marki gestanna.

66.mín: Yao Yaoo er ennþá á fullu í skallaboltunum og fékk núna dæmda á sig aukaspyrnu fyrir ná ekki lengra upp en í ennið á Harandi Frey sem fann aðeins fyrir þessu höggi og fékk réttilega aukaspyrnu. Selfoss reynir mikið að sækja og þeir eru líklega komnir yfir 10 rangstöður í leiknum

62.mín: Frábær markvarsla frá Jóhanni Ólafi markmanni Selfoss. Hörður Sveinsson slapp gjörsamlega einn í gegn og hafði allann tímann í heiminum til að ákveða hvernig hann ætti að tækla Jóhann. En það eru fáir betri í þessari stöðu hér á landi heldur en Jóhann Ólafur og las hann Hörð eins og Morgunblaðið.

62.mín: Það eru fáir duglegri við það að vinda sér í skallabolta en Yao Yao sem er líklega svar Fílabeinsstrandarinnar við Mini Me. Yao Yao er annars líklega besti leikmaður Selfoss það sem af er leik.

58.mín: Mun meira líf í heimamönnum núna í upphafi seinni hálfleiks og Einar Ottó sem eitt sumarið var á mála hjá Keflavík hefur komið ferskur inn.

51.mín: Arilíus fær gult fyrir brot rétt fyrir utan vítateig. Úrvalsfæri fyrir Guðmund Steinarsson sem tók lúmskt skot undir vegginn sem Jóhann Ólafur varði.

48.mín:MARK JÓN GUÐBRANDSSON MINNKAR MUNINN FYRIR SELFOSS Yao Yao sem auðvitað var enn einu sinni rangstæður rétt áður tók aukaspyrnu sem Sævar Gíslason fékk,. Spyrnan fór fyrir og beint á kollinn á Jóni Bónda Guðbrandssyni sem skilaði honum í netið.

47.mín: Yao Yao dæmdur rangstæður sem væri kannski ekki frásögu færandi ef ekki væri fyrir að þetta er líklega í 4-5 skipti sem þessi miðjumaður Selfyssinga er dæmdur rangstæður í leiknum, geri aðrir betur.

46.mín: Fínt færi hjá Selfyssingum og Sævar Gísla var að því er virtist í úrvalsfæri en náði ekki boltanum sem fór því bara aftur fyrir endamörk.

46.mín: Þá erum við komin af stað að nýju, Einar Ottó er kominn inná fyrir Gunnar Borgþórsson.

45.mín: Þar með hefur Gunnar Jarl flautað til leikhlés hér á Selfossi og nýjasti slagiari Ingó Tóta (Veðurguðs) er kominn á fóninn. Ég mæti aftur ferskur í seinni hálfleik.

44.mín: Selfyssingar skora en markið var réttilega dæmt af þar sem Arilíus var dæmdur brotlegur áður fyrir brot á Lasse Jörgensen.

37.mín: MARK HÖRÐUR SVEINSSON ER BÚINN AÐ KOMA KEFLVÍKINGUM Í 0-2 Hörður fékk góðan bolta innfyrir frá Guðmundi Steinarssyni og var einn á auðum sjó gegn Jóhanni Ólafi sem reyndar varði, en Hörður skilaði frákastinu í netið. Selfyssingar heimtuðu rangstöðu en sjálfur sá ég þetta ekki nógu vel.

36.mín: Yao Yao fékk aukaspyrnu á vinstri kantinum sem hann tók sjálfur og sendi fyrir á Jón Guðbrandsson sem skallaði framhjá!

33.mín: Líklegt upphlaup Keflvíkinga endar með því að Magnús Þórir slapp í gegn en var réttilega dæmdur rangstæður.

29.mín: Ágætt upphlaup hjá heimamönnum, Sævar Gísla sem er að spila á vinstri kantinum fékk boltann og kom honum strax á Yao Yao (Jájá), hann sendi boltann á Viktor Unnar sem náði skoti að marki en það fór yfir.

25.mín: Einar Orri fær tiltal hjá Gunnari Jarli dómara fyrir brot á Arilíusi á miðjum vellinum. Ekki mikið að gerast þessa stundina, Selfoss er meira með boltann núna en allar sóknaraðgerðir gestanna eru markvissari.

20.mín: Viktor Unnar fær gult spjald fyrir brot á Hólmari. Vignir Egill sem er að lýsa leiknum á Suðurland FM lýsti þessu sem sambærilegu broti og þegar Joe Cole fékk rautt fyrir gegn Arsenal um helgina. Sel það ekki dýrara en ég stal því.

17.mín: Dauðafæri hjá Keflvíkingum sem hefðu átt að vera komnir í 0-2 núna. Fyrst spólaði Magnús Sverrir sig í gegn en skot hans var varið á línu af Martin Dohlsten. Í sömu sókn komst Hörður Sveinsson í úrvalsfæri en skot hans fór yfir. Varnarmenn Selfyssinga þurfa virkilega að fara girða sig í brók.

15.mín: Selfyssingar reyna áfram að sækja að marki Keflvíkinga en gengur illa, rangstöðu vörn gestanna er mjög sterk.

11.mín: MARK MAGNÚS ÞÓRIR SKORAR FYRSTA MARKIÐ Á NÝJUM VELLI SELFYSSINGA Vörn Selfyssinga leit afar illa út þarna er Magnús prjónaði sig í gegn með léttum þríhyrning við Magnús Sverri og setti boltan örugglega í hornið framhjá Jóhanni Ólafi í markinu.

10.mín: Ég er aðeins í basli með netið hérna en það hefur lítið gerst svosem, Selfoss er aðeins búið að taka við sér og hafa átt nokkur efnileg upphlaup en vörn gestana er sterk.

3.mín: Keflvíkingar byrja betur og eiga fyrsta skot leiksins en það vel framhjá.

1.mín: Þá er allt klárt og Gunnar Jarl dómari flautar til leiks. Það eru heimamenn sem byrja með boltann.

19:05: Talandi um sjónvarpið þá er þetta að öllum líkindum í fyrsta skipti sem Selfoss spilar fótbolta í beinni útsendingu ef frá eru taldir æfingaleikir sem sýndir voru á Sport TV í vor. Stöð 2 Sport er mætt í öllu sínu veldi á Selfoss. Presturinn er annars að renna yfir faðirvorið með Skjálfta og því ætti allt að fara verða klárt.

19:05: Strákarnir í Skjálfta eru mættir í fullum skrúða hér á völlinn þó þeir hafi ekki ennþá komist að. Puma sveitin er hinsvegar hvergi sjáanleg og sagði forsprakki þeirra að þeir myndu að öllum líkindum hvetja sjónvarpið í kvöld.

19:00: Kjartan Sigurðsson miðvörður Selfyssinga stóð sig vel um daginn er meistaraflokkur Selfoss var að flytja varamannaskýlin af gervigrasinu yfir á aðalvöllinn, hann fór í bakinu og er því ekki með í dag. Stefán Ragnar meiddist hinsvegar í upphafi leiks gegn Stjörnunni og er ennþá að jafna sig á því. Jón Bóndi Guðbrandsson fer því í miðvörðinn í dag, eitthvað sem hann hefur ekki verið þekktur fyrir áður. Sævar Gísla verður síðan að öllum líkindum meira á hægri kantinum líkt og hann var allajafna þegar hann var hjá Fylki þar sem Viktor Unnar er kominn upp á topp.

18:55 Aðstæður eru annars allt að því fullkomnar hér á Selfossi, veðrið er ljómandi gott eins og alltaf á þessum besta degi ársins, sól og blíða að sjálfsögðu. Brandarinn um að gervigrasið sé nýslegið er því miður úreltur nú en grasvöllurinn er að sjálfsögðu nýslegin og iðagrænn.

Núna er Eyþór Arnalds formaður bæjarráðs Árborgar að flytja ávarp og þakka þeim sem hafa komið að byggingu stúkunnar. Sjálfur bíð ég á öndinni eftir því hvort hann taki ekki lagið Hermaur fyrir okkur.

18:50: Það er hörkustemming hér á Selfossi og þessi nýja stúka er þegar að verða full og hálftími í leik. Kjartan Björnsson rakari er mættur út á völl og farinn að stjórna vígsluathöfn á vellinum, auðvitað nýklippur og fínn.

18:45: Þá eru byrjunarliðin klár, Selfyssingar gera nokkrar breytingar á sínu liði, Sævar Þór kemur aftur inn eftir meiðsli og Jón Guðbrandsson kemur inn í miðvörðinn fyrir Kjartan Sig og Stefán Ragnar sem báðir eru meiddir. Andri Freyr er síðan í banni í þessum leik en Guessan kemur á bekkinn aftur eftir leikbann sem hann tók út gegn Stjörnunni. Hjá Keflavík er Hörður Sveinsson kominn inn fyrir Jóhann B. Guðmundsson (Johnny be good).

Selfoss: Jóhann Ólafur Sigurðsson, Martin Dohlsten, Agnar Bragi Magnússon, Jón Guðbrandsson, Guðmundur Þórarinsson, Gunnar Rafn Borgþórsson, Jean Stephane YaoYao, Arilíus Marteinsson, Jón Daði Böðvarsson, Sævar Þór Gíslason, Viktor Unnar Illugason.
Varamenn: Elías Örn Einarsson, Sigurður Eyberg Guðlaugsson, Davíð Birgisson, Ingi Rafn Ingibergsson. Einar Ottó Antonsson, Viðar Örn Kjartansson og Guessan Bi Herve.

Keflavík Lasse Jörgensen, Alen Sutej, Guðjón Árni Antoníusson, Haraldur Freyr Guðmundsson, Einar Orri Einarsson, Guðmundur Steinarsson, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Magnús Þórir Matthíasson, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Hólmar Örn Rúnarsson, Hörður Sveinsson.
Varamenn: Ómar Jóhansson, Ian Paul McShane, Jóhann Birnir Guðmundsson, Andri Steinn Birgisson, Bojan Stefán Ljubicic, Brynjar Örn Guðmundsson og Magnús Þór Magnússon.

18:30Sæl og margvelkomin í beina textalýsingu frá Selfossvelli. Hér stendur mikið til enda Selfyssingar að vígja nýjan heimavöll sinn og taka í gagnið nýja 750 manna stúku. Klukkan 18:45 verður haldin létt vígsluathöfn þar sem prestur vígir völlinn og síðan hefst leikur Selfoss og Keflavíkur klukkan 19:15.

Byrjunarliðin koma hér inn um leið og ég hef þau.
Slapp
banner
banner