,,Þetta var yndislegt. Ég gat ekki hugsað mér þetta betra. Að skora eitt og fiska víti í þessari stemningu á þessum velli, þetta gat ekki verið betra," sagði Viðar Örn Kjartansson eftir 3-2 sigur Selfoss á Keflavík kvöld.
Viðar kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik og fiskaði vítaspyrnu sem skapaði annað markið áður en hann skoraði síðan sigurmarkið.
,,Fyrri hálfleikurinn var drulla. Hann hefur greinilega hrist eitthvað upp í þeim hálfleik og við komum með nýtt lið hérna í seinni hálfleik. Ég vorkenndi stuðningsmönnunum í fyrri hálfleik en þeir hljóta að geta fagnað núna. Þetta er geðveikt."
Viðar Örn hefur verið að koma hægt og rólega til baka eftir að hafa slitið krossband undir lok Íslandsmótsins í fyrra.
,,Ég er ekki orðinn 100%, ég er 80, 90 og jafnvel 70. Maður verður betri með hverjum deginum og ég vona að ég fái fleiri mínútur næst, hálftíma kannski."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
























