Trausti Már Valgeirsson sjúkraþjálfari svarar reglulega fyrirspurnum lesenda um algeng meiðsli í fótboltanum og útskýrir málið hér á Fótbolta.net. Trausti svarar í dag nýrri fyrirspurn.
Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].
Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].
Trausti Már útskrifaðist úr Læknadeild Háskóla Íslands með B.sc. gráðu í sjúkraþjálfun árið 2008. Hann hefur 1. september störf sem sjúkraþjálfari hjá Sporthúsinu. Hann hefur unnið mikð með íþróttafólki úr ýmsum greinum eins og til dæmis fótbolta, mótorcrossi, taekwondo og fleira
Spurningin:
Sæll,
spurningin hljóðar þannig : Veist þú um einhver dæmi þar sem knattspyrnumenn hafi þurft að víkja af leikvangi vegna meiðsla á getnaðarlimnum, þá á ég við ef þeir hafa fengid skot á staðinn sinn?
Svar Trausta:
Já það eru til dæmi um það. Algengt að leikmenn fái „spark í punginn“, þá ýmist getur það verið bolti, fótur eða hné sem lendir á pungnum og það er frekar líklegra að þeir þurfi að yfirgefa leikvandinn vegna þess heldur en við högg einungis á getnaðarliminn.
En þar sem eistun hafa mikinn fjölda viðkvæmra taugaenda, þá er mjög sársaukafullt að fá högg á þennan stað og það getur tekið leikmann nokkrar mínútur að jafna sig eftir slíkt högg og flestir detta niður í grasið af sársauka og sumum verður jafnvel óglatt í smá tíma á eftir.
En svo eru til alvarlegri dæmi um að leikmenn hafi fengið svo öflugt spark í punginn að þeir hafi misst annað eistað eða jafnvel í sumum tilvikum mjaðmagrindabrotnað sem eru orðin mjög alvarleg meiðsli.
Kv.Trausti.



