Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   mán 23. ágúst 2010 22:18
Alexander Freyr Tamimi
Umfjöllun: KR-ingar í bullandi toppbaráttu
Óskar Örn Hauksson fagnar með liðsfélögunum í kvöld.
Óskar Örn Hauksson fagnar með liðsfélögunum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kjartan Henry skorar fyrsta mark KR.
Kjartan Henry skorar fyrsta mark KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mark Rutgers fagnar marki sínu.
Mark Rutgers fagnar marki sínu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óskar Örn lætur vaða og skorar síðasta mark KR.
Óskar Örn lætur vaða og skorar síðasta mark KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Baldur Sigurðsson og Stefán Jóhann Eggertsson eigast við.
Baldur Sigurðsson og Stefán Jóhann Eggertsson eigast við.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 1 - 4 KR:
0-1 Kjartan Henry Finnbogason ('55)
0-2 Mark Rutgers ('57)
0-3 Óskar Örn Hauksson ('63)
0-4 Óskar Örn Hauksson ('65)
1-4 Jón Vilhelm Ákason ('77)

KR-ingar héldu áfram á frábæru skriði þegar þeir unnu mikilvægan 4-1 sigur á erkifjendunum í Val á Hlíðarenda í kvöld. Eftir markalausan fyrri hálfleik létu KR-ingar taka til sín í þeim síðari og kafsigldu heimamenn með fjórum mörkum á tíu mínútna kafla sem gerði út af við leikinn.

Með sigrinum er KR komið í býsna góða stöðu í toppbaráttunni og er staðreyndin einfaldlega sú að ef þeir vinna alla þá leiki sem þeir eiga eftir verða þeir Íslandsmeistarar árið 2010. Það var það sem fólk bjóst við í fyrstu en enginn hefði trúað því fyrir mánuði eða tveimur síðan.

Það voru heimamenn sem voru líklegri til að skora í heldur tíðindalitlum fyrri hálfleik á Hlíðarenda en bæði lið fengu þó ágætis færi. Það munaði engu að Valur kæmist yfir á 20. mínútu þegar Arnar Sveinn Geirsson komst í dauðafæri en Jordao Diogo bjargaði vel. Arnar Sveinn var aftur á ferðinni þegar hann átti annað gott færi þegar hann fylgdi eftir skoti frá Diarmuid O‘Carroll en Lars Ivar Molskred í marki KR varði glæsilega.

Þremúr sekúndum fyrir lok uppbótartíma náði Atli Sveinn Þórarinsson góðum skalla eftir fyrirgjöf frá Martin Pedersen en boltinn fór naumlega framhjá og staðan var markalaus þegar flautað var ti leikhlés.

KR-ingar mættu miklu ferskari til síðari hálfleiks og uppskáru eftir því þegar Kjartan Henry Finnbogason kom þeim yfir með góðu marki. Kjartan Henry kom með gott hlaup eftir stungusendingu frá Óskari Erni Haukssyni og kláraði vel framhjá nafna sínum Sturlusyni í markinu.

Einungis tveimur mínútum síðar kom sjaldséð mark frá Hollendingnum Mark Rutgers en hann skoraði með stórkostlegu skoti eftir hornspyrnu frá Óskari Erni.

Allur vindur virtist úr Valsörum eftir þennan leik og erkifjendur þeirra úr Vesturbænum gengu á lagið. Óskar Örn Hauksson hélt áfram að gera góða hluti og skoraði stórkostlegt mark með frábæru langskoti. Knötturinn söng í netinu eftir viðkomu í Kjartani Sturlusyni og staðan skyndilega orðin 3-0 fyrir gestunum.

Óskar Örn var síðan aftur á ferðinni einungis tveimur mínútum síðar og ekki var seinna markið síðra. Það kom eftir gríðarlega vel útfærða sókn KR-inga sem endaði með mjög góðri fyrirgjöf frá Kjartan Henry Finnbogasyni í fætur Óskars sem þrumaði knettinum í slána og inn.

Þó svo að enn væru 25 mínútur væru eftir var ljóst að úrslitin væru ráðin og datt leikurinn talsvert niður eftir þessi fjögur mörk. Þótt ótrúlegt megi virðast sóttu heimamenn aðeins í sig veðrið en það var kannski að stórum hluta vegna þess að KR-ingar vissu að þeirra verki væri lokið.

Jón Vilhelm Ákason náði að klóra í bakkann fyrir val á 77. mínútu með mjög góðu skoti en fátt fleira gerðist markvert í leiknum og urðu lokatölur 4-1 fyrir KR. Þeir styrkja stöðu sína enn frekar í 4. sætinu með sigrinum og geta komist upp fyrir FH ef þeir vinna leikinn sem þeir eiga inni gegn Fylki á fimmtudag.

Valur, sem hefði getað jafnað KR að stigum, situr eftir í 8. sætinu með 22 stig, sem eru svo sannarlega vonbrigði fyrir liðið sem ætlaði sér stóra hluti í ár.

Þessi leikur var síðasti leikur Jordao Diogo leikmanns KR með liðinu á tímabilinu sem er á leið til gríska úrvalsdeildarfélagsins Panserraikos á láni. Ljóst er að missir verður fyrir KR-inga af þessum öfluga Portúgala en auk þess verður Bjarni Guðjónsson í banni þegar liðið mætir FH næsta mánudag.


Byrjunarlið Vals: Kjartan Sturluson (M), Stefán Jóhann Eggertsson, Martin Pedersen, Atli Sveinn Þórarinsson, Jón Vilhelm Ákason, Rúnar Már Sigurjónsson, Arnar Sveinn Geirsson, Diarmuid O‘Carroll, Ian Jeffs, Haukur Páll Sigurðsson, Þórir Guðjónsson.

Byrjunarlið KR: Lars Ivan Molskred, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Bjarni Guðjónsson, Kjartan Henry Finnbogason, Skúi Jón Friðgeirsson, Baldur Sigurðsson, Óskar Örn Hauksson, Björgólfur Takefusa, Viktor Bjarki Arnarsson, Mark Rutgers, Jordao Diogo.

Maður leiksins: Óskar Örn Hauksson, KR
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner