Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   mán 23. ágúst 2010 21:43
Kjartan Már Gunnarsson
Umfjöllun: Keflavík og Stjarnan skildu jöfn í Bítlabænum
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Keflavík - Stjarnan 2-2
1-0 Hörður Sveinsson (´2)
1-1 Arnar Már Björgvinsson (´9)
2-1 Hörður Sveinsson (´50)
2-2 Halldór Orri Björnsson (´81)

Keflvíkingar fengu Garðbæinga í heimsókn á Sparísjóðsvellinum nú í kvöld. Sól og blíða var í Keflavík í kvöld en þó blés duglega þegar líða fór á leikinn. Upphafsmínútur leiksins voru heldur betur fjörlegar en eftir aðeins eina mínútu og 10 sekúndur voru heimamenn komnir yfir. Magnús Þórir Matthíasson sendi þá fyrir markið og rataði sendingin á kollinn á Herði Sveinssyni sem gerði engin mistök og skallaði örugglega framhjá Bjarna í markinu og staðan því orðin 1-0.

Keflvíkingar héldu áfram að sækja en Stjörnumenn reyndu að sækja hratt á þá og það skilaði sér á 9 mínútu þegar Atli Jóhannsson sendi á Arnar Már Björgvinsson sem var einn á auðum sjó og kláraði færið án teljandi vandræða. Keflvíkingar voru mjög ósáttir en þeir töldu að Stjörnumenn hefðu verið rangstæðir.

Tvem mínútum eftir markið slapp Ólafur Karl Finnsen innfyrir vörnina og núna var engin spurning um rangstæðu en Haraldur Freyr náði að elta hann uppi og loka á skot Ólafs, mjög góð vörn hjá Haraldi.

Keflvíkingar héldu svo boltanum vel innan liðsins og höfðu öll undirtök á miðjunni. Þeir náðu þó ekki að skapa sér nein afgerandi færi, það var þó á 30 mínútu þegar náðu heldur betur að skapa sér gott færi. Magnús Sverrir fór þá framhjá þremur varnarmönnum Stjörnunar, nafni hans Magnús Þórir rúllaði honum út fyrir teiginn þar sem Hólmar Örn var í góðu skotfæri og lét vaða á markið. Bjarni Þórður varði frá Hólmari og boltinn barst út í teiginn til Guðmundar Steinarssonar sem þrumaði boltanum í stöngina, þaðan fór boltinn í Hörð Sveinsson en Stjörnumenn náðu að bjarga á línu.

Fimm mínútum fyrir leikslok fengu Stjörnumenn svo gott þegar færi þegar Daníel Laxdal átti skot að marki eftir mikla dramatík í vítateig Keflvíkinga en skot hans var yfir markið. Hörður Sveinsson hefði svo átt að bæta við öðru marki þegar hann fékk frábæra sendingu frá Hólmari Erni inn fyrir vörnina og stóð einn gegn Bjarna í markinu, Hörður skaut föstu skoti beint á Bjarna sem stóð bara og fékk boltann í sig, vel gert hjá Bjarna en Hörður hefði átt að gera mikið mun betur.

Leikmenn gengu því til búningsklefa í stöðunni 1-1.

Í síðari hálfleik mættu Keflvíkingar einbeittir til leiks og fengu fyrsta færi síðari hálfleiks þegar Magnús Sverrir var kominn í ákjósanlegt marktækifæri við vítateigslínuna en fast skot hans fór framhjá markinu. Þetta kveikti þó einhverja neista í Keflavíkurliðinu því tvem mínútum síðar bættu þeir við marki. Alen Sutej hljóp þá upp vinstri kantinn og var kominn að endalínu þegar hann sendi fasta fyrirgjöf fyrir markið, Hörður Sveinsson var fyrstur að átta sig og var fyrstur í boltann, skot hans fór yfir Bjarna Þórð í markinu og í slánna, Hörður var þó aftur fyrstur í frákastinu og skoraði með því að pota boltanum yfir línuna. Góð barátta í Herði og það skilaði marki.

Stjörnumenn komnir undir og voru ekki líklegir til að jafna leikinn meðað við fyrstu mínútur síðari hálfleiks. En það kviknaði þó smá líf í þeim eftir markið og á 60. mínútu hefðu þeir átt að jafna leikinn þegar Björn Pálsson var einn á auðum sjó eftir að þrír leikmenn hefðu fallið hver um annan í vítateig Keflvíkinga, hans skot var þó lélegt og reyndi Arnar Már að stýra boltanum á markið en tókst ekki og endaði boltinn rétt yfir markslánni. Lasse Jörgensen meiddist eitthvað í samskiptum sínum við Arnar Már og tafðist leikurinn töluvert af þeim sökum. Lasse hélt þó áfram leik.

Tæpum 20. mínútum fyrir leikslok fékk svo Hörður Sveinsson gott færi þegar Guðmundur Steinarsson sendi laglega frá vinstri kanti yfir til hægri á Hörð sem ákvað að þruma boltanum í fyrstu snertingu en hafði ekki árangur sem erfiði og fast skot hans fór yfir markið.

Á 81. mínútu gerðist svo skondið atvik. Halldór Orri Björnsson fékk boltann á vinstri kantinum og sendi með hægri fæti inná vítateiginn, Stjörnumenn náðu ekki til boltans en öllum að óvörum gerði Lasse Jörgensen í marki Keflavíkur það ekki heldur. Boltinn skoppaði því í stöngina inn og staðan orðin jöfn. Mjög slysalegt mark fyrir Lasse í markinu.

Tvem mínútum síðar komst Magnús Sverrir í mjög gott færi við markteigshornið og vippaði fallega yfir bjarna Þórð í markinu en þá kom Tryggvi Sveinn Bjarnason á ferðinni og kastaði sér fyrir boltann og skallaði frá, ævintýraleg björgun frá Tryggva sem var ekki á þeim buxunum að láta Keflvíkinga komast yfir í þriðja skiptið í leiknum.

Keflvíkingar pressuðu á Stjörnumenn undir lokin og fékk Haukur Ingi Guðnason gott færi eftir að hafa verið nýkominn inná sem varamaður þegar hann komst einn í gegn en skot hans fór framhjá markinu. Fátt markvert gerðist í átta mínútna uppbótartíma fyrir utan það að Einar Orri Einarsson átti skot að marki sem fór framhjá og úrsltin því 2-2 í mjög skemmtilegum leik.

Keflvíkingar spiluðu skemmtilegan bolta í þessum leik og Hörður Sveinsson gerði vel í því að skora tvö mörk í þessum leik. Hins vegar stendur leikur þeirra Einars Orra og Hólmars Arnar uppúr en þeir voru mjög sterkir á miðjunni og Hólmar Örn virðist vera kominn í sitt gamla form.

Stjörnumenn geta hins vegar farið sáttir með eitt stig þrátt fyrir að hafa auðvitað getað stolið öllum stigunum í kvöld, Halldór Orri fór fyrir sínum mönnum og átti mjög góðan leik en hann hefur stimplað sig inn sem einn allra besti leikmaðurinn í Pepsi deildinni í sumar.

Keflavík: Lasse Jörgensen, Alen Sutej, Guðjón Árni Antoníusson, Haraldur Freyr Guðmundsson, Einar Orri Einarsson, Guðmundur Steinarsson, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Magnús Þórir Matthíasson, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Hólmar Örn Rúnarsson og Hörður Sveinsson

Varamenn: Ómar Jóhannsson, Jóhann Birnir Guðmundsson, Andri Steinn Birgisson, Haukur Ingi Guðnason, Bojan Stefán Ljubicic, Brynjar Örn Guðmundsson, Magnús Þór Magnússon


Stjarnan: Bjarni Þórður Halldórsson, Tryggvi Sveinn Bjarnason, Jóhann Laxdal, Björn Pálsson, Atli Jóhannsson, Daníel Laxdal, Halldór Orri Björnsson, Bjarki Páll Eysteinsson, Þorvaldur Árnason, Ólafur Karl Finnsen, Arnar Már Björgvinnsson

Varamenn: Magnús Karl Pétursson, Dennis Danry, Birgir Hrafn Birgisson, Hilmar Þór Hilmarsson, Hafsteinn Rúnar Helgason, Garðar Jóhannsson og Víðir Þorvarðason

Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson
Aðstæður: Sól og blíða í upphafi leiks, sterkur vindur og fór að kólna þegar líða tók á leikinn
Maður leiksins: Einar Orri Einarsson (Keflavík)

banner