Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 27. ágúst 2010 07:00
Hafliði Breiðfjörð
Dragan: Ósáttir og boðuðu til fundar eftir 5-0 sigurleik
Kvenaboltinn
Dragan Stojanovic er hættur þjálfun Þór/KA.
Dragan Stojanovic er hættur þjálfun Þór/KA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þetta er ekki alveg óvænt, það var fundur fyrr í mótinu eftir leikinn á móti Grindavík sem við unnum 5-0. Þeir voru ekki alveg sáttir eftir þann leik.''
,,Þetta er ekki alveg óvænt, það var fundur fyrr í mótinu eftir leikinn á móti Grindavík sem við unnum 5-0. Þeir voru ekki alveg sáttir eftir þann leik.''
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég er mjög ánægður með það sem ég hef gert hérna á fjórum árum og er ánægður með það sem hefur gerst í uppbyggingu kvennaboltans hjá Þór/KA.''
,,Ég er mjög ánægður með það sem ég hef gert hérna á fjórum árum og er ánægður með það sem hefur gerst í uppbyggingu kvennaboltans hjá Þór/KA.''
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dragan Stojanovic hætti í gær óvænt sem þjálfari kvennaliðs Þór/KA sem er í öðru sæti Pepsi-deildar kvenna. Hann ræddi við Fótbolta.net um brottreksturinn í gærkvöld.

,,Stjórnin er ekki á sama máli og ég, það er búið að vera svolítið erfitt í nokkrar vikur," sagði Dragan í samtali við Fótbolta.net í gærkvöld.

Ósáttir og boðuðu til fundar eftir 5-0 sigurleik
Þó svo brotthvarf Dragan frá félaginu hafi komið mjög flestum á óvart í gærkvöld var hann farinn að finna merki um að eitthvað ósætti hafi orðið því eftir 5-0 sigur á Grindavík 14. júlí var boðið til fundar.

,,Þetta er ekki alveg óvænt, það var fundur fyrr í mótinu eftir leikinn á móti Grindavík sem við unnum 5-0. Þeir voru ekki alveg sáttir eftir þann leik," sagði Dragan.

,,Ég hefði haldið að starf mitt í þjálfun meistaraflokks snerist um að ná góðum árangri og búa til góða leikmenn ef það er hægt. En það er ekki nóg fyrir þá sem stjórna."

Get ekki haft alla í stjórninni ánægða
Fótbolti.net fékk fyrst veður af þessu undir miðnætti í gærkvöld og birti svo frétt um málið uppúr miðnætti. Athygli vakti að þá hafði félagið ekki enn tilkynnt um þessa ákvörðun, en hvenær var honum tilkynnt þetta?

,,Þetta gerðist klukkan tvö í dag. Þeir tóku ákvörðun um að segja mér upp. Ég hef náð góðum árangri með liðið en ég get ekki hugsað um alla aðra hluti líka. Ég get ekki haft alla ánægða í stjórninni og hugsað líka um árangur liðsins. Það er bara ekki hægt," sagði Dragan.

,,Ég vil ekki tjá mig frekar um þetta, ég er búinn að segja þeim allt sem ég vil segja. Mér finnst ég hafa skilað ágætlega þessu starfi sem ég gegndi en núna kemur annar maður í staðinn."

,,Samningurinn minn átti hvort sem er að renna út í september en nú rann hann skyndilega út í dag. Ég er tilbúin að taka við öðru liði ef það kemur eitthvað gott upp. Ég er opinn fyrir öllu hvar sem það er."


Taldi að ég hafi verið ráðinn til að ná árangri
Hann hafði tekið við liðinu haustið 2006 og náð frábærum árangri með liðið. Á fyrsta tímabili endaði það í næst neðsta sæti, en í því fjórða 2008, þriðja 2009 og er sem stendur í 2. sæti. Þá vann liðið sinn fyrsta titil undir hans stjórn í fyrra er þær urðu Lengjubikarmeistarar.

,,Ég er mjög ánægður með það sem ég hef gert hérna á fjórum árum og er ánægður með það sem hefur gerst í uppbyggingu kvennaboltans hjá Þór/KA. Við erum í öðru sæti í dag og búin að gera ýmislegt gott. Þetta er bara svona, það er ekki árangurinn sem gerði þetta að verkum en sumar stelpur hafa ekki fengið að spila og svona. Ég taldi að ég hafi verið ráðinn til að ná árangri en þeir eru ekki á sama máli og ég."
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner