Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. ágúst 2010 15:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Stoke í viðræðum um kaup á Eiði Smára
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Stoke á í viðræðum við Monaco um kaup á Eiði Smára Guðjohnsen en þetta segja heimildir Sky Sports.

Eiður Smári er á förum frá Monaco en hann hefur verið í leit að nýju félagi að undanförnu.

Eiður Smári hefur verið orðaður við Fulham, Rangers og fleiri félög en nú virðist Stoke vera í bílstjórasætinu í baráttunni um leikmanninn.

Á síðustu leiktíð var Eiður Smári í láni hjá Tottenham og nú gæti hann verið á leið í enska boltann að nýju.

Stoke þarf þó að ná samkomulagi um kaupverð sem fyrst ef félagið ætlar að krækja í Eið þar sem félagaskiptaglugginn lokar á þriðjudag.
banner
banner
banner