Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 30. ágúst 2010 19:47
Einar Matthías Kristjánsson
BEINT: Selfoss 2-3 Valur (Leik lokið)
Gunnlaugur er mættur aftur á Selfoss
Gunnlaugur er mættur aftur á Selfoss
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfoss 2-3 Valur
0-1 Jón Vilhelm Ákason (15)
0-2 Arnar Sveinn Geirsson (32)
1-2 Viktor Unnar Illugason (65 víti)
1-3 Guðmundur Steinn Hafsteinsson (68)
2-3 Sævar Þór Gíslason (83)

90.mín: Þó nokkur spenna hérna í lokin en Valsmenn náðu að sigla stigunum þremur í land hér á Selfossi. Umfjöllun og viðtöl koma hér innan skamms.

88.mín: Viðar Örn í dauðafæri og átti gott skot að marki sem Kjartan Sturlu mátti hafa sig allan við að verja.

84.mín: Ingi Rafn er kominn inná fyrir Jón Guðbrandsson hjá heimamönnum sem ætla að leggja allt undir til að jafna metin.

83.mín: MARK SÆVAR GÍSLASON MINKAR MUNINN Ingþór Jóhann átti góðan sprett og sendi boltan fyrir markið og beint á markahrókinn Sævar Þór Gíslason sem gat ekki annað en lagt boltann í netið.

80.mín: Haukur Páll fær gult spjald fyrir brot á Einari Ottó Antonssyni.

77.mín: Aftur ver Jóhann glæsilega frá Ian Jeffs sem fékk góða stungusendingu og mjög gott skotfæri.

74.mín: Ian Jeffs komst einn í gegn en nú varði Jóhann Ólafur glæsilega í horn.

71.mín: Sævar Gísla fær gult fyrir hörku tæklingu á Hauki Páli.

68.mín: MARK VALSMENN SVARA UM HÆL Guðmundur Steinn Hafsteinsson nýtti sér hræðileg mistök Jóhanns Ólafs markmanns Selfyssinga og lagði boltan í autt markið. Jóhann hefur ekki gert mörg mistök í sumar en þessi voru slæm enda virtist hann missa bara af boltanum þó hættan virtist engin.

65.mín: MARK VIKTOR UNNAR SKORAR GEGN SÍNUM GÖMLU FÉLÖGUM Kjartan Sturlu fór í rangt horn og vítið þar af leiðandi mjög öruggt hjá Viktori sem sleppti því núna að vippa boltanum.

64.mín: Víti á Valsmenn, Gregg Ross varði með hendi hjólhesta spyrnu Sævars og fær gult að launum.

62.mín: Guðmundur Steinn kemur inná fyrir Arnar Svein hjá Valsmönnum og á sama tíma kemur Ingþór Jóhann inná fyrir Guessan Bi Herve hjá heimamönnum.

58.mín: Frikki sjúkraþjálfari Valsara var ekki lengi að koma Jóni í stand enda skotfljótur strákurinn.

57.mín: Viktor Unnar fær gult fyrir brot á Jóni Vilhelm sem liggur eftir viðskipti sín við Viktor.

50.mín: Selfyssingar koma mun ákveðnari til leiks í seinni hálfleik, hafa átt nokkur horn og upp úr einu slíku verja Valsmenn á línu eftir skalla frá Jóni Guðbrandssyni.

46.mín: Þá erum við aftur komin af stað hérna á Selfossi, bæði lið eru óbreytt eftir leikhléð en ljóst er að Gummi Ben hefur lesið duglega yfir sínum mönnum sem komu langt á eftir gestunum úr búningsklefanum.

45.mín: Leikurinn er stopp eins og er þar sem Arnar Sveinn Geirsson liggur eftir. Það er annars ekkert eftir en að flauta til leikhlés sem og Gunnar Jarl dómari gerir. Valsmenn mikið sterkari í fyrri hálfleik og eru verðsluldað yfir.

38.mín: Selfyssingar gera breytingu á liði sínu, útaf fer sænski bakvörðurunn Martin Dohlsten sem hefur haltrað um völlinn sl. tíu mínútur og inná kemur sóknarmaðurinn Viðar Örn Kjartansson og því ljóst að Gummi Ben ætlar að blása til sóknar.

32.mín: MARK NÚNA SKORAR ARNAR SVEINN LÖGLEGA Pedersen komst auðveldlega upp kantinn og sendi fyrir á Arnar Svein sem skallaði boltann auðveldlega í netið. Flott mark hjá gestunum sem hafa verið að taka yfir leikinn og er ljóst að mikið þarf að gerast hjá Selfyssingum ef þeir ætla að snúa þessu við.

30.mín: Arnar Sveinn skoraði fyrir Valmenn eftir gott spil í gegnum vörn heimamanna en það var löngu áður búið að flagga rangstöðu og því er staðan ennþá 0-1 fyrir gestina.

26.mín: Lítið að gerast hérna á Selfossi, bæði lið reyna að byggja upp sóknir en leikurinn fer að mestu fram á miðjunni.Fréttir frá öðrum völlum fengu Valsmenn þó til að fagna smá.

22.mín: Rúnar Már fær gult hjá gestunum fyrir brot á Martin Dohlsten.

15.mín: MARK VALSMENN ERU KOMNIR YFIR Nú er heldur betur eitthvað að gerast á vellinum. Stefán Jóhann sendi góðan bolta fyrir og beint á kollinn á Jón Vilhelmi Ákasyni sem skallaði boltann í nærhornið framhjá Jóhanni Ólafi markmanni.

14.mín: Talandi um stuðningmsenn þá hljómar það ágætlega þegar liðin hvetja sín lið á sama tíma, Selfoss + Valur á sama tíma hljómar ekki ólíkt orðinu Svalur á bjagaðri íslensku. Eins og þið sjáið er ekkert að gerast í leiknum sjálfum.

13.mín: Miðað við stemminguna á vellinum akkurat núna má leiða að því líkur að þessi leiktími henti stuðningsmönnum ekkert sértaklega. Skjálftamenn reyna þó að syngja sína menn í gang.

12.mín: Valsmenn í dauðafæri, Jón Vilhelm kom upp vinstri kantinn og sendi fyrir á Arnar Svein Geirsson sem skaut yfir markið.

10.mín: Selfyssingar fá aukaspyrnu á góðum stað rétt fyrir utan teig en Jón Guðbrandsson setti boltan yfiir markið.

5.mín: Yao Yao miðjumaður Selfoss fær dæmdan á sig háskaleik og er þetta líklega bara nokkuð stór stund hjá Yao Yao enda afar lágvaxinn.

4.mín: Leikurinn var stopp um stund eftir samstuð Agnars Braga og Jóhanns Ólafs markmanns en þeir eru báðir staðnir upp.

2.mín: Valsmenn spila í gráum búningum og maður veltir því fyrir sér hvort United maðurinn Gunnlaugur Jónsson hafi samþykkt þetta fyrir leik.

1.mín: Leikurinn er hafinn hér á Selfossi og byrja heimamenn með boltann og gera sig bara líklega í fyrstu sókn.

17:50: Hjá Valsmönnum eru allir klárir í slaginn, enginn í banni og engin alvarleg meiðsl og ætti Gunnlaugur því að geta stillt upp sínu sterkasta liði. Hann hefur annars verið mikið í fréttum þessa vikuna eftir að fréttir bárust af því að stjórn Vals hygðist skipta honum út fyrir Guðjón Þórðason. Ekkert varð af þessu og í raun hætti meirihluti stjórnar knattspyrnudeildar Vals í kjölfarið af þessu máli. Þetta mál er þó ekki á dagskrá hér í dag og Gunnlaugur er mættur ferskur hér á Selfoss með sína menn og er núna nýbúinn að funda ásamt Gumma Ben þjálfara heimamanna með Stuðningsmannasveitinni Skjálfta og fleiri stuðningsmönnum.

17:50: Hjá heimamönnum er Jón Daði Böðvarsson er í banni ásamt Arilíusi Marteinssyni.

17:40: Þá eru byrjunarliðin klár hjá báðum liðum og er svohljóðandi:
Selfoss: Jóhann Ólafur Sigurðsson (M), Martin Dohlsten, Agnar Bragi Magnússon, Stefán Ragnar Guðlaugsson, Andri Freyr Björnsson, Jón Guðbrandsson, Jean Stephane YaoYao, Sævar Þór Gíslason, Viktor Unnar Illugason, Einar Ottó Antonsson, Guessan Bi Herve.
Varamenn: Elías Örn Einarsson (M), Kjartan Sigurðsson, Ingþór Jóhann Guðmundsson, Ingi Rafn Ingibergsson, Viðar Örn Kjartansson, Guðmundur Þórarinsson,Gunnar Rafn Borgþórsson

Byrjunarlið Vals: Kjartan Sturluson (M), Stefán Jóhann Eggertsson, Martin Pedersen, Atli Sveinn Þórarinsson, Greg Ross, Baldur Ingimar Aðalsteinsson, Jón Vilhelm Ákason, Rúnar Már Sigurjónsson, Arnar Sveinn Geirsson, Ian Jeffs, Haukur Páll Sigurðsson.
Varamenn: Ásgeir Þór Magnússon (M), Reynir Leósson, Sigurbjörn Hreiðarsson, Einar Marteinsson, Guðmundur Steinn Hafsteinsson, Diarmuid O‘Carroll, Þórir Guðjónsson.

17:20: Sæl og velkomin í beina textalýsingu frá leik Selfoss og Valsmanna. Leikurinn hefst klukkan 18:00 sem er frábær leiktími svona á mánudegi. Byrjunarliðin koma hér inn innan skamms.
Slapp
banner
banner
banner