Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 30. ágúst 2010 20:46
Einar Matthías Kristjánsson
Umfjöllun: Valsmenn lögðu Selfyssinga
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld.
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Selfoss 2-3 Valur
0-1 Jón Vilhelm Ákason (15)
0-2 Arnar Sveinn Geirsson (32)
1-2 Viktor Unnar Illugason (65 víti)
1-3 Guðmundur Steinn Hafsteinsson (68)
2-3 Sævar Þór Gíslason (83)

Gunnlaugur Jónsson mætti með sína menn á Selfossvöll í fyrsta skipti eftir að hann yfirgaf Selfyssinga með dramatískum hætti í fyrra. Það er óhætt að segja að sl. vika hafi verið álíka viðburðarrík og sú er hann sagði skilið við Selfoss og líklega var hann og Valsmenn allir bara fegnir að komast út á völl til að spila fótbolta. Það var allavega það sem þeir gerðu og var ekki að sjá að um væri að ræða lið í krísu.

Selfyssingar sáu aldrei til sólar í fyrri hálfleik og var staðan sanngjarnt 0-2 í leikhléi. Fyrra mark hálfleiksins kom á 15.mínútu er Stefán Jóhann Eggertsson sendi góðan bolta fyrir á Jón Vilhelm Ákason sem skallaði í netið.

Rúmlega korteri seinna var nákvæmlega sama upp á teningnum nema hvað nú sóttu Valsmenn upp vinstri kantinn, Martin Pedersen sendi fyrir á Arnar Svein Geirsson sem skallaði af öryggi í netið.

Guðmundur Benediktsson þjálfari Selfyssinga hefur líklega lesið duglega yfir sínum mönnum í hálfleik þar sem þeir komu mun seinna en Valsmenn úr klefanum og mættu mun ákveðnari til leiks.

Heimamenn reyndu hvað þeir gátu að pressa á þétta vörn Valsmanna og loks eftir 20 mínútna leik í seinni hálfleik tókst þeim að brjóta ísinn. Sævar Gíslason átti þá hjólhestaspyrnu sem Greg Ross varði vel í teignum. Það er hinsvegar bannað þar sem Ross er ekki markmaður og því lítið annað fyrir Gunnar Jarl dómara að gera en að dæma vítaspyrnu. Úr henni skoraði Viktor Unnar Illugason af öryggi og minnkaði þar með muninn í 1-2.

Adam var þó ekki lengi í paradís hjá heimamönnum því Valsmenn svörðu um hæl með þriðja marki sínu. Guðmundur Steinn Hafsteinsson nýtti sér afar sjaldséð og mjög svo klaufaleg mistök Jóhanns Ólafs markmanns Selfyssinga og komst óvænt einn gegn opnu marki og skoraði af öryggi.

Jóhann Ólafur bætti nú aðeins upp fyrir mistökin með því að verja tvisvar meistaralega eftir að Ian Jeffs komst einn í gegn.

En á 83.mínútu átti varamaðurinn Ingþór Jóhann Guðmundsson góðan sprett upp kantinn og sendi boltan fyrir á Sævar Þór Gíslason sem gat lítið annað gert en að rúlla honum í netið. Gott mark hjá þeim félögum og hleypti þetta klárlega kærkominni spennu í lokakaflann.

Lengra komust heimamenn þó ekki þrátt fyrir nokkrar ágætar tilraunir og niðurstaðan því 2-3 sigur Valsmanna sem sigla því lygnan sjó um miðja deild. Selfyssingar eru hinsvegar komnir í slæma stöðu, eru fjórum stigum á eftir Fylkismönnum sem eru í 10.sæti og eiga næst útileik gegn íslandsmeisturum FH.


Selfoss: Jóhann Ólafur Sigurðsson (M), Martin Dohlsten, Agnar Bragi Magnússon, Stefán Ragnar Guðlaugsson, Andri Freyr Björnsson, Jón Guðbrandsson, Jean Stephane YaoYao, Sævar Þór Gíslason, Viktor Unnar Illugason, Einar Ottó Antonsson, Guessan Bi Herve.
Varamenn: Elías Örn Einarsson (M), Kjartan Sigurðsson, Ingþór Jóhann Guðmundsson, Ingi Rafn Ingibergsson, Viðar Örn Kjartansson, Guðmundur Þórarinsson,Gunnar Rafn Borgþórsson

Byrjunarlið Vals: Kjartan Sturluson (M), Stefán Jóhann Eggertsson, Martin Pedersen, Atli Sveinn Þórarinsson, Greg Ross, Baldur Ingimar Aðalsteinsson, Jón Vilhelm Ákason, Rúnar Már Sigurjónsson, Arnar Sveinn Geirsson, Ian Jeffs, Haukur Páll Sigurðsson.
Varamenn: Ásgeir Þór Magnússon (M), Reynir Leósson, Sigurbjörn Hreiðarsson, Einar Marteinsson, Guðmundur Steinn Hafsteinsson, Diarmuid O‘Carroll, Þórir Guðjónsson.


Maður leiksins: Haukur Páll Sigurðsson
Aðstæður: Fínar aðstæður og gott veður á Selfossi þó ekki hafi verið sól.
Áhorfendur: 933 og er afleitum leiktíma líklega um að kenna að þeir voru ekki fleiri.
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson og átti hann mjög góðan dag.

Slapp
banner
banner