Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 30. ágúst 2010 21:40
Þórður Már Sigfússon
Eiður Smári á leið til Fulham
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fótbolti.net hefur Eiður Smári Guðjohnsen ákveðið að ganga til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Fulham en Stoke City hafði vonast eftir því að fá hann til félagsins áður en félagaskiptaglugginn lokast á morgun.

Eiður er væntanlegur í læknisskoðun hjá Fulham og verður hann kynntur til sögunnar sem nýr leikmaður liðsins á morgun.

Um er að ræða eins árs lánssamning en Eiður er samningsbundinn franska úrvalsdeildarliðinu Mónakó.

Ekki reyndist unnt að ná í umboðsmann Eiðs Smára í dag.
banner
banner
banner
banner