Trausti Már Valgeirsson sjúkraþjálfari svarar reglulega fyrirspurnum lesenda um algeng meiðsli í fótboltanum og útskýrir málið hér á Fótbolta.net. Trausti svarar í dag nýrri fyrirspurn.
Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].
Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].
Trausti Már útskrifaðist úr Læknadeild Háskóla Íslands með B.sc. gráðu í sjúkraþjálfun árið 2008. Hann hefur 1. september störf sem sjúkraþjálfari hjá Sporthúsinu. Hann hefur unnið mikð með íþróttafólki úr ýmsum greinum eins og til dæmis fótbolta, mótorcrossi, taekwondo og fleira
Spurningin:
Hvernig virkar legkökunudd ?
Svar Trausta:
Það er ekki vitað nákvæmlega hvernig legkökunudd virkar en dýralegkökur hafa verið notaðar lengi í hrukkukrem og aðrar snyrtivörur vegna þess hve næringarríkar þær eru. Einnig hefur það þekkst að í Perú hafi börnum verið gefið þurrar legkökur að borða og bæta heilsu þeirra og auka hreysti eftir fæðingu og það er líka þekkt í dýraríkinu að mæður hafi borðað eigin legköku til þess að ná sér fyrr eftir fæðingu afkvæmis, sem bendir til að legkökur séu og hafa mikinn forða af næringarríkum efnum.
Frægasta dæmið í fótboltaheiminum er líklega ökklameiðslin sem Van Persie lenti í með landsliði sínu, en meðferð hans fólst í því að legkökuvökva úr hesti var nuddað á ökklann á honum sem átti að flýta fyrir bata á liðbandinu sem hann sleit. En Serbneski meðferðaraðilinn vill ekki gefa upp nánar hvernig meðferðinni er háttað.
Í Journal of the Royal Society of medicine, þá er minnst á Henry VIII konungur Englands (28 June 1491 – 28 January 1547) hafi sett legköku á sýkingu í sári sem hann var með á fæti til þess að flýta fyrir bata. Þannig að þessi aðferð er ekki að öllu ný og menn trúa að einhverju leyti á lækningamátt legkökunnar þó þeir geti ekki sýnt nákvæmlega fram í það hvernig hún virkar.


