,,Það er mikil tilhlökkun í að fá að spila þessa leiki," sagði Sölvi Geir Ottesen miðvörður Íslands á æfingu liðsins í Keflavík en liðið mætir Noregi á föstudag og Dönum á þriðjudag í undankeppni EM 2012.
,,Við spiluðum góðan leik á móti Noregi síðast en Noregur er mjög gott lið. Ég myndi segja að við séum mjög líkir hvað styrkleika varðar svo við verðum bara að koma grimmir í leikinn og þá eigum við góða möguleika."
Sölvi Geir leikur með FC Kaupmannahöfn í Danmörku og skaut liðinu í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á dögunum.
,,Það var viss upplifun að ná að skora þetta eina mark í þessum leik og koma okkur áfram í Meistaradeildinni. Það var alveg einstaklega gaman."
,,Mér finnst þetta mjög góður riðill hjá okkur, við fáum Barcelona sem er mjög skemmtilegt og viss upplifun að fá að spila á móti þeim."
,,Svo fáum við Panathinaikos og Rubin Kazan sem eru mjög sterk lið en ég sé alveg fram á að við getum komist áfram með heppni og góðum leik."
























