Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 01. september 2010 12:42
Alexander Freyr Tamimi
Breytingar á U21: Elfar Freyr og Guðmundur Reynir inn í hóp
Guðmundur Reynir Gunnarsson er í U21 landsliðshópi Íslands sem mætir Tékklandi.
Guðmundur Reynir Gunnarsson er í U21 landsliðshópi Íslands sem mætir Tékklandi.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur bætt við tveimur leikmönnum í hópinn fyrir leikinn gegn Tékkum sem fer fram þriðjudaginn 7. september, en þetta kemur fram á vef KSÍ. Þeir Guðmundur Reynir Gunnarsson úr KR og Elfar Freyr Helgason úr Breiðabliki koma inn í hópinn.

Jósef Kristinn Jósefsson leikmaður Grindavíkur er meiddur og getur ekki verið með í leiknum. Þá á Hólmar Örn Eyjólfsson við meiðsli að stríða og er óvíst með þátttöku hans í leiknum. Hann mun engu að síður fara með liðinu út til Tékklands og fara því 19 leikmenn í ferðina að þessu sinni.

Sigur Íslendinga í þessum leik gæti komið þeim í mjög sterka stöðu og gæti svo farið að þeir vinni riðilinn ef Þjóðverjum tekst að vinna Tékka þann 3. september.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner