Stjörnumenn frumsýndu nýtt fagn í 3-2 tapi liðsins gegn Fram um síðustu helgi.
Eftir að Þorvaldur Árnason skoraði og kom Stjörnunni í 2-1 var klósettfagnið frumsýnt.
Eftir að Þorvaldur Árnason skoraði og kom Stjörnunni í 2-1 var klósettfagnið frumsýnt.
Atli Jóhannsson hafði reyndar ætlað að taka þetta fagn þegar hann skoraði fyrra mark Stjörnunnar í leiknum en það tókst ekki.
,,Í fyrsta markinu ætluðu þeir að gera þetta en Atli var ekki alveg með hlutverk sitt á hreinu, að fara á setuna. Hann fór bara eitthvað á háhest á Bjarka og við þurftum að reyna þetta aftur í seinna markinu og þá fór Valli (Þorvaldur Árnason) á klósettið og sturtaði niður eftir sig," sagði Haldór Orri Björnsson um fagnið.
Smelltu hér til að sjá myndband af fagninu




