Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 01. september 2010 15:02
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Eiður Smári: Hefði geta notið þess að horfa á fallega báta
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Eiður Smári Gujohnsen leikmaður Stoke segist hafa ákveðið að ganga í raðir félagsins til að spila fótbolta.

Hann segir að hann hefði getað verið áfram í Monaco og notið þess að vera í góðu veðri og hafa það gott.

,,Þeir sýndu mikinn áhuga á að fá mig hingað. Fólk vissi um stöðuna mína hjá Monaco og að ég vildi fara og þeir vissu af þessu og þeir stóðu ekki í vegi fyrir mér," sagði Eiður Smári.

,,Ég hafði marga möguleika um allan heim og ég ákvað á síðustu stundu að skrifa undir hérna og ætla að gera það besta úr því."

,,Stoke lagði mikið á sig að fá mig hingað, ég vil bara spila fótbolta."

,,Þegar ég kom í ensku deildina í fyrra áttaði ég mig á því að ég hér vil ég vera. Þetta er deildin sem ég vil spila í, þetta er mest spennandi deildin að spila í að mínu mati."

,,Ég tel mig eiga góðan möguleika á að spila mikið hérna."

,,Félagið er að sýna mikinn metnað, þeir hafa fengið nokkra leikmenn í sumar og á síðustu tveimur leiktíðum hefur liðið endaði í 11 og 12 sæti. Ég vona að með komu minni geti liðið orðið alvöru úrvalsdeildar félag og lið sem fólk kannast ivð."

,,Það eru ekki mörg lið sem kunna vel við að spila hérna, þetta er ekki auðveldur staður að koma á og ná í stig. Ég vona að ég komi með smá gæði og reynslu inn í þetta."


Eiður segir að hann vilji bara spila fótbolta í stað þess að sitja í sólinni í Monaco.

,,Þetta er bara útaf fótboltanum, ég hefði getað sitið á samningi mínum í Moncao og notið þess að vera í góðu veðri og horfa á fallega báta. Það sem skiptir mig mestu máli er fótboltinn og þess vegna tók ég þessa ákvörðun og hún var mjög auðveld."

Fyrst var talað um að hann hefði verið lánaður en Stoke keypti hann.

,,Ég held að það komi út á sama, þetta er tólf mánaða samningur hvort sem það er lán eða ég var keyptur. Ég verð hér þessa leiktíðina og mun gera mitt besta til að hjálpa liðinu eins mikið og ég get."
Slapp