Heimild: Sky
Rio Ferdinand leikmaður Manchester United mun snúa til baka í kvöld með varaliði félagsins.
Ferdinand hefur verið meiddur á hné frá því að hann meiddist með Englandi í undirbúningi fyrir HM í sumar.
Hann átti að koma til baka í lok september en mun spila gegn Oldham í kvöld.
Þeir Wes Brown, Anderson og Ferderice Macheda munu einnig spila með liðinu í kvöld.
Ef Ferdinand kemst heill frá þessu gæti hann spilað með United gegn Everton þann 11 september.



