Heimild: Sky
Asamoah Gyan nýjasti leikmaður Sunderland vonast til að standa sig í ensku úrvalsdieldinni.
Þessi 24 ára gamli framherji frá Ghana er dýrasti leikmaður í sögu Sunderland en hann kostaði 13 milljónir punda frá Rennes.
,,Þetta var langur dagur en loksins gekk þetta í gegn og ég er sáttur að vera kominn hingað. Fjölskylda mín og vinir eru líka sáttir fyrir mína hönd," sagði Gyan.
,,Fjölskylda mín er nú þegar í Englandi og ég er sáttur að þetta sé rétti staðurinn fyrir mig."
,,Stjórinn hefur trú á mér af því að hann hefur fylgst með mér í tvö ár."
,,Ég er sáttur með að fá tækifæri til að spila á Englandi."


