Heimild: Sky
Tyrkneska félagið Fenerbahce hefur fengið varnarmanninn Joseph Yobo á láni frá Everton út tímabilið.
Þessi 29 ára gamli leikmaður náði að standast læknisskoðun og ganga frá félagaskiptunum áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gær.
Yobo kom til Everton frá Marseille árið 2002 en hann hefur ekki verið inni í myndinni hjá félaginu að undanförnu.
Alls hefur Yobo leikið tæpa 200 leiki með Everton en nú er ljóst að hann mun spila í Tyrklandi í vetur.



