ÍBV 4 - 1 Keflavík
1-0 Edda María Birgisdóttir ('9)
1-1 Nína Ósk Kristinsdóttir ('18)
2-1 Kristín Erna Sigurlásdóttir ('23)
3-1 Lerato Kgasago ('33)
4-1 Edda María Birgisdóttir ('36)
1-0 Edda María Birgisdóttir ('9)
1-1 Nína Ósk Kristinsdóttir ('18)
2-1 Kristín Erna Sigurlásdóttir ('23)
3-1 Lerato Kgasago ('33)
4-1 Edda María Birgisdóttir ('36)
ÍBV tryggði sér í dag sæti í Pepsi deild kvenna með 4-1 sigri á Keflavík í Vestmannaeyjum. ÍBV vann því samtals 8-1, en það má segja að þær hafi verið komnar með annan fótinn í deild þeirra bestu eftir 4-0 sigur í Keflavíkinni um helgina.
Edda María Birgisdóttir, lánsmaður frá Stjörnunni, kom ÍBV yfir þegar tæpar 10 mínútur voru liðnar af leiknum en Nína Ósk Kristinsdóttir jafnaði metin fyrir Keflavík.
Mörk frá Kristínu Ernu Sigurlásdóttur, Lerato Kgasago og Eddu Maríu tryggðu þó ÍBV sannfærandi sigur, en liðið komst meðal annars í undanúrslit VISA bikars kvenna.


