Heimild: Sky
Danny Shittu hefur yfirgefið herbúðir Bolton en honum er nú frjálst að finna sér nýtt félag þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé lokaður.
Þessi 29 ára gamli varnarjötunn kom til Bolton frá Watford fyrir tveimur árum og lék alls tólf leiki með þeim hvítklæddu.
Shittu er nígerískur landsliðsmaður en hann spilaði meðal annars á HM í Suður-Afríku í sumar.
Hann fór feril sinn á Englandi með Charlton árið 1999 og þá hefur hann einnig leikið með QPR og Blackpool.




