Heimild: BBC
Blackpool hefur keypt ástralska miðjumanninn David Carney frá Twente fyrir óuppgefna upphæð.
Blackpool náði að ganga frá kaupunum áður en félagaskiptaglugginn lokaði í fyrradag en formleg staðfesting á því fékkst hjá ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.
Carney, sem er 26 ára, hefur meðal annars verið á mála hjá Everton, Sheffield United og Norwich á ferli sínum.
,,Þetta hafa verið annasamir 24 klukkustundir en ég er ánægður með að þetta sé klárt og núna hlakka ég til að fara að spila," sagði Carney.

