Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 02. september 2010 07:00
Karitas Þórarinsdóttir
Lið Eddu og Ólínu gáfu Djurgarden þefinn fyrir bikarinn
Kvenaboltinn
Edda átti góðan leik.
Edda átti góðan leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Örebro DFF þar sem Edda Garðarsdóttir og Ólína Viðarsdóttir leika, náðu að sýna í gær að þær eru klárar í bikarleikinn eftir góðan sigur á Guðbjörgu Gunnarsdóttur og félögum hennar í Djurgarden.

KIF Örebro DFF 3-1 Djurgårdens IF DFF
1-0 Sanna Talonen (‘9)
2-0 Marie Hammarström (‘12)
2-1 Sarah Michael (’35)
3-1 Marina Pettersson (’76)


Örebro stúlkur áttu fjölmörg færi í leiknum en samkvæmt tölfræðum eftir leikinn áttu Örebro 22 skot gegn 12 skotum frá Djurgarden.

Þjálfari Djuargaden var alls ekki að tapa sér yfir þessum leik, en hann benti á það að nú sæi hann hvernig Örebro spilar og ætlar því að nota sér leikinn í gær sem góðan undirbúning fyrir bikarleikinn sem verður seinna í vetur.

Þjálfari Örebro var sáttur með úrslitin og þá sérstaklega fyrri hálfleikinn hjá stelpunum sínum, en hinsvegar fannst honum nýtingin á skotunum alls ekki vera í lagi.

Allir íslendingarnir voru í byrjunarliðinu, Edda á miðjunni og Ólína í bakverðinum hjá Örebro en Guðbjörg stóð í markinu hjá Djurgarden.
Slapp
banner
banner
banner