Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 02. september 2010 11:19
Magnús Már Einarsson
Gunnlaugur fær stuðningsyfirlýsingu á spjallsíðu Vals
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Stuðningsmenn Vals hafa búið til spjallþráð á heimasíðu félagsins þar sem lýst er yfir stuðningi við Gunnlaug Jónsson þjálfara liðsins.

Mikið gekk á í herbúðum Vals í síðustu viku í kjölfar fréttaflutnings RÚV af því að Gunnlaugur hafi verið beðinn að segja af sér og Guðjón Þórðarson var orðaður við félagið.

Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar, og þrír stjórnarmenn sögðu af sér en Gunnlaugur hélt starfi sínu.

Gunnlaugur stýrði Val síðan í 3-2 sigrinum gegn Selfyssingum í vikunni og nú hafa stuðningsmenn liðsins sýnt honum stuðning á spjallsíðu félagsins.

Alls hafa 27 stuðningsmenn kvittað undir stuðningsyfirlýsinguna þegar þetta er skrifað.

Smelltu hér til að lesa stuðningsyfirlýsinguna á spjallinu
Slapp
banner