Heimild: Eyjafréttir
ÍBV heimsækir í dag vini sína á Suðurlandinu í KFR en liðið hélt af stað frá Eyjum rétt áðan en heldur síðan á Hellu.
Þar verða settar upp æfingabúðir með þjálfurum og leikmönnum ÍBV klukkan 14:00 en umsjón með æfingunum hafa þeir Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍBV og Heimir Hallgrímsson, þjálfari meistaraflokks karla.
Viðræður um sameiningu félaganna tveggja hafa átt sér stað og halda þær viðræður áfram í dag.
,,KFR mun svo grilla pylsur fyrir manskapinn áður en viðureign KFR og ÍBV mun fara fram kl. 16:00 á Hellu. Þetta er liður í því að auka tengslin milli félagana, og einnig vekja aukinn áhuga ungra knattspyrnuiðkanda á Suðurlandinu. Vitað er um mikinn áhuga Rangeyinga á leiknum og vonandi mæta sem flestir og taka þátt í þessum skemmtilega degi. Við minnum svo á næsta heimaleik ÍBV sem er gegn KR sunnudaginn 12. september, en nú fer hver að verða síðastur að ná sér í miða í Herjólf,“ segir á heimasíðu ÍBV.





