Heimild: Sky
Sol Campbell leikmaður Newcastle hefur ekki gefist upp á því að komast aftur í enska landsliðið.
Þessi reyndi varnarmaður er orðinn 36 ára gamall en hann gekk í raðir Newcastle í sumar.
,,Ég held að það skipti máli hvernig þetta er gert og hverjir starfa hjá sambandinu," sagði Campbell.
,,Þeir taka þessar ákvarðanir og þetta snýst líka um hugarfarið hjá þjóðinni. Þú sérð að á Ítalíu er varnarmenn og markverðir endalaust að halda áfram."
,,Þú getur skoðað þá leikmenn sem hafa spilað seint á fertugsaldrinum sem hafa spilað með landsliðinu."

