Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 02. september 2010 16:07
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Man Utd hefði getað fengið Bebe á 125 þúsund pund
Manchester United hefði getað keypt portúgalska framherjann Bebe á 125 þúsund pund á síðasta tímabili. Þessi tvítugi leikmaður kom óvænt til Manchester United frá Guimaraes á 7,4 milljónir punda á dögunum.

Bebe sló í gegn með Estrela da Amadora í portúgölsku þriðju deildinni og var nýkominn til Guimaraes þegar Manchester United ákvað að kaupa hann.

Jorge Paxaio, þjálfari Estrela da Amadora, segir að félagið hafi verið tilbúið að selja hann á 150 þúsund evrur (125 þúsund pund) fyrr á þessu ári.

,,Á síðasta tímabili áttum við engan pening. Við vorum að reyna að selja Bebe," sagði Paxaio.

,,Við þurftum nauðsynlega að fá pening. Við sögðum öllum á Englandi og í Evrópu að hann væri falur fyrir 150 þúsund evrur."

,,Við gátum ekki vakið neinn áhuga. Enginn treysti honum. Ekkert félag hafði áhuga því hann hafði aldrei spilað á meðal þeirra bestu."

Slapp
banner