Heimild: Sky
Christian Poulsen leikmaður Liverpool segist vera að venjast hraðanum í enska boltanum.
Poulsen gekk í raðir Liverpool frá Juventus í sumar.
,,Mér líður vel hérna, leikurinn gegn West Brom var fyrsti leikurinn með Fernando Torres og fyrirliðann og þú verður að læra á það hvernig þeir vilja boltann," sagði Poulsen.
,,Fernando er sterkur leikmaður og getur gert hluti á góðum hraða í stöðunni einn gegn einum."
,,Steven og Fernando hafa gott auga fyrir hvor öðrum og þú sást það gegn West Brom. Ég vona að þeir bæti sig jafnvel meira."
,,Þegar ég kom hingað hafði ég ekki spilað síðan á HM svo ég þarf tíma til að komast inn í þetta."


