Heimild: BBC
Carlos Queiroz, landsliðsþjálfari Portúgala, hefur verið dæmdur í sex mánaða bann eftir að hann truflaði lyfjapróf eftir leik á HM í sumar.
Íþróttadómstóll í Portúgal komst að þessari niðurstöðu í dag en Queiroz truflaði lyfjapróf og móðgaði þá sem stóðu að prófinu.
Portúgalska knattspyrnusambandið hafði áður sett Queiroz í eins mánaðar bann en nú er ljóst að bannið verður lengra.
Queiroz mun því ekki stýra Portúgal í fyrstu leikjum liðsins í undankeppni EM en hann missir meðal annars af leiknum gegn Íslendingum á Laugardalsvelli þriðjudaginn 12.október næstkomandi.



