Heimild: Aftenbladet
Norskir fjölmiðlar gera að því skónna að Rúnar Kristinsson, einn af njósnurum íslenska landsliðsins, hafi tekið hluta af lokaðri æfingu norska landsliðsins upp á myndband í dag.
Ástæðan er sú að hann fylgdist með æfingunni bak við skyggða glugga á Laugardalsvallarstúkunni þar sem stórri sjónvarpsupptökuvél hefur verið komið fyrir.
Rúnar neitar þessu hins vegar alfarið í samtali við Aftenbladet og segir þetta byggt á misskilningi.
,,Nei, nei þetta er stór sjónvarpsupptökuvél sem er ætluð fyrir leikinn á morgun. Ég nota ekki svona stóra myndbandsupptökuvél,“ sagði Rúnar og Nils Johan Semb, yfirmaður landsliðsmála hjá Noregi, segist ekki ætla að eyða púðri í þessar vangaveltur norsku fjölmiðlana.
,,Það er næstum því ómögulegt að stjórna slíkum lokuðum æfingum. Það ríkir heiðursmannasamkomulag um að enginn (óviðkomandi) komi á slíkar æfingar og ég vona að Íslendingarnir virði það. Við ætlum ekki að eyða orku í þetta mál.“



