Grétar Rafn Steinsson hægri bakvörður íslenska landsliðsins hefur ekki getað beitt sér að fullu á æfingum liðsins síðustu daga en verður klár í slaginn þegar liðið mætir Norðmönnum á Laugardalsvelli annað kvöld.
,,Ég er fully fit og klár í slaginn, ég hef tekið því rólega á æfingum. Það er búin að vera mikil keyrsla á mér síðustu vikur á mér og erfiður leikur á sunnudaginn sem tók dálítið í. Það hafa því verið rólegheit en það sem skiptir máli er að vera í standi þegar leikurinn hefst á föstudagkvöld," sagði Grétar Rafn á fréttamannafundi íslenska landsliðsins á Laugardalsvelli í gær.
,,Það þýðir ekki að vera bestur á æfingum á mánudögum, þriðjudegi, miðvikudegi og fimmtudegi. Það sem skiptir máli er að spila fótbolta þegar leikurinn er og ég verð klár þegar flautað verður," hélt hann áfram.
Ólafur Jóhannesson þjálfari íslenska liðsins tók í sama strengt á fréttamannafundinum og sagði að Grétar Rafn verði með í leiknum á morgun.
,,Grétar hefur átt í vandræðum með hnéð á sér og auðvitað höfum við reynt að haga undirbúningi hans þannig að við séum ekki mikið að þjösnast á honum því hann hefur átt erfitt með að æfa á fullu. Þess vegna höfum við farið varlega í sakirnar með hann og hann hefur verið meira í gyminu að styrkja á sér löppina en hann verður 100% fit þegar leikurinn verður."




