Undankeppni EM fer af stað af krafti á morgun þegar fjölmargir leikir fara fram en einn leikur fór fram í kvöld þar sem Ísrael sigraði Möltu 3-1.
Yossi Benayoun, leikmaður Chelsea, gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í leiknum.
Benayoun er fyrirliði Ísraela en hann skoraði tvívegis í síðari hálfleiknum og tryggði sigurinn eftir að staðan hafði verið 1-1 í leikhléi.
Ísrael og Malta eru í F-riðli í undankeppninni ásamt Króatíu, Lettlandi, Grikklandi og Georgíu.



