Nokkrir leikir í sænsku kvennadeildinni hefjast í dag.
13:00 LdB FC Malmö - Sunnanå SK
13:00 Kristianstads DFF - Jitex BK
14:00 Djurgården - Linköpings FC
14:00 Hammarby IF DFF - KIF Örebro DFF
15:00 Tyresö FF - AIK
Þóra Helgadóttir og félagar hennar í hinu óstöðvandi liði Malmö mæta Sunnana og varla er búist við öðru en sigri af þeirra hendi.
Íslendingaliðið Kristianstad mætir Jitex í hörkuleik en búast má við Kristianstad stúlkum í biluðum stríðsgír eftir tapið á móti Malmö í síðasta leik.
Guðbjörg Gunnarsdóttir og félagar í Djurgarden mæta Linköping en með sigri Djurgarden geta þær jafnað Kristianstad að stigum.
Tvíeykið Edda Garðarsdóttir og Ólína Viðarsdóttir í Örebro, mæta Hammarby í hörkuleik þar sem Hammarby er að berjast fyrir veru sinni í deildinni.




