Tómas Ingi þjálfari HK var ekki sáttur við tap sinna manna gegn Leiknismönnum í dag en var þó á því að sigur Leiknis hefði verið sanngjarn.
,,Betra liðið vann. Leiknisliðið er að keppa að mjög miklu og mér fannst þeir bara vera betra en við í heildina. Þegar þeir skora eftir hálfleik að þá bakka þeir svoldið og ætla að halda þessu og koma mjög hættulegir í skyndisóknum á okkur. Mér fannst við ekkert eiga skilið út úr þessu. Þeir unnu sem vildu það meira" sagði Tómas Ingi í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
Gengi HK í sumar hefur ekki verið nógu gott og hefur vantað upp á að þeir klári leikina.
,,Þennan leik áttum við aldrei að klára. En eiginlega fannst mér á tímabili heppni með okkur að þeir væru ekki komnir yfir þannig að ég var kannski farinn að gæla við það að við myndum kannski stela einhverju eins og er búið að stela af okkur í sumar"
Nánar er rætt við Tómas í sjónvarpinu hér að ofan.






















