Stjarnan 3 – 2 Þór/KA
0-1 Mateja Zver (´15)
1-1 Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir (´37)
2-1 Katie McCoy (´69, víti)
2-2 Mateja Zver (´78, víti)
3-2 Inga Birna Friðjónsdóttir (´88)
0-1 Mateja Zver (´15)
1-1 Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir (´37)
2-1 Katie McCoy (´69, víti)
2-2 Mateja Zver (´78, víti)
3-2 Inga Birna Friðjónsdóttir (´88)
Stjarnan vann í dag sanngjarnan 3-2 sigur á liði Þórs/KA í 16. umferð Pepsi deildar kvenna. Leikurinn var allan tímann í járnum en Stjörnustúlkur voru þó ívið líklegri til að tryggja sér sigur og uppskáru eftir því á lokamínútunum.
Leikurinn byrjaði með talsverðu jafnræði en Norðanstúlkur klúðruðu sannköluðu dauðafæri eftir tæpan stundarfjórðung þegar Vesna Smiljkovic skaut framhjá fyrir opnu marki. Gestirnir höfðu þá leikið á vörn Stjörnunnra og Rakel Hönnudóttir gaf boltann framhjá Söndru markverði og til Vesnu sem skaut á einhvern ævintýralegan hátt framhjá markinu.
Það kom þó ekki að sök því að einungis mínútu eða tveimur síðar kom Mateja Zver þeim yfir eftir að hafa leikið á Söndru Sigurðardóttur markvörð Garðbæinganna. Mateja og Sandra kepptust við að ná knettinum sem var fyrir utan teig en Mateja klobbaði Söndru og kláraði síðan skotið í markið. Staðan orðin 1-0 fyrir Þór/KA.
Tæpum tíu mínútum síðar munaði hársbreidd að Stjarnan jafnaði metin eftir góða fyrirgjöf frá Katie McCoy. Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir náði fyrst skoti sem var varið en síðan náði Lindsay Schwartz að fylgja eftir, en varnarmenn Þórs/KA bægði hættunni frá.
Katie McCoy hefði síðan getað jafnað þegar hún fékk gott skotfæri inni í teig eftir aukaspyrnu frá vinstri kantinum en hún var óheppin með skotið og knötturinn fór beint á Berglindi í markinu. Stjörnustúlkur höfðu virkilega tekið við sér eftir markið og voru sterkari aðilinn.
Það var því verðskuldað þegar Stjörnustúlkur jöfnuðu metin með marki frá Soffíu Arnþrúði Gunnarsdóttur á 37. mínútu. Inga Birna Friðjónsdóttir átti þá góða fyrirgjöf inn í teig sem barst til Rachel Rapinoe sem skaut í slána. Soffía náði síðan að fylgja eftir með skalla sem endaði í netinu.
Þór/KA hefði getað komist yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks en í stað þess að skjóta ákvað Vesna Smijlkovic að reyna að gefa boltann á Mateju Zver en sending hennar var slök og staðan jöfn í leikhléi.
Stjarnan var einnig betri aðilinn í seinni hálfleiknum og átti Rapinoe skot framhjá eftir tæpa klukkustund. Lítið var að gerast framan af síðari hálfleiknum og bæði lið að spila ágætlega miðað við mikið rok. Stjarnan virtist þó vera ívið líklegri til að skora næsta mark og það var einmitt það sem gerðist.
Á 68. mínútu fékk Stjarnan nefnilega vítaspyrnu þegar brotið var á Ingu Birnu Friðjónsdóttur inni í teig gestanna. Á punktinn steig Katie McCoy og skoraði af þvílíku öryggi í vinstra hornið. Katie var mjög góð í leiknum og hefur verið að gera frábæra hluti á tímabilinu.
Gestirnir lifnuðu við eftir markið og sóttu stífar. Þær voru auk þess með vindi en það var gífurlega vindasamt í þessum leik.
Á 77. mínútu fékk Þór/KA síðan vítaspyrnu þegar Rakel Hönnudóttir tók glæsilega á móti sendingu inn í teiginn. Hún reyndi að fara framhjá Söndru í marki Stjörnunnar en hún missti boltann of langt frá sér og hann var á leið út af. En Sandra felldi hins vegar Rakeli og víti dæmt. Mateja Zver steig á punktinn og jafnaði fyrir Þór/KA.
Stjörnustúlkur sóttu gríðarlega eftir þetta mark og Soffía var óheppin að bæta ekki við sínu öðru marki. Þær bláklæddu ætluðu augljóslega að hirða stigin þrjú og börðust vel. Rachel Rapinoe var hársbreidd frá því að skora en hún skaut rétt framhjá úr markteig þegar tæpar tíu mínútur voru eftir og Norðanstúlkur ljónheppnar.
Þær voru ekki jafn heppnar þegar Stjarnan fékk hornspyrnu seint í leiknum. Eftir klafs í teignum náði Inga Birna Friðjónsdóttir að sparka knettinum í netið og staðan 3-2 fyrir Stjörnunni. Inga Birna átti því stóran þátt í öllum mörkum Stjörnunnar í dag og stóð sig frábærlega. Skömmu eftir markið tók systir Ingu Birnu hjá Þór/KA, Elva Friðjónsdóttir, sig til og henti boltanum í andlit Stjörnustúlku og uppskar fyrir það gult spjald.
Skömmu síðar var flautað til leiksloka, engin skipting átti sér stað í leiknum og var einungis einni mínútu bætt við. Með sigri þessum tókst Stjörnunni nánast að tryggja sér fjórða sæti deildarinnar og halda þær enn í vonina um að ná að hirða annað eða þriðja sætið. Þær eru þremur stigum á eftir Þór/KA og fjórum stigum á eftir Breiðablik, sem tapaði í dag gegn FH.
Þór/KA á ennþá gífurlega góða möguleika á öðru sætinu þrátt fyrir tapið. Þær hefðu komist upp fyrir Breiðablik með sigri eða jafntefli í dag en þær eiga tvo tiltölulega auðvelda leiki eftir, gegn KR og Aftureldingu. Breiðablik á eftir að mæta Haukum og Val og ef þær misstíga sig í öðrum þeirra leikja verða Akureyrarstúlkur sjálfsagt tilbúnar til að refsa.
Valsstúlkur munu að öllum líkindum tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í dag, en til að það gerist þurfa þær að vinna Aftureldingu í Mosfellsbæ. Sá leikur hófst klukkan 17:00.
Byrjunarlið Stjörnunnar: Sandra Sigurðardóttir (M), Katie McCoy, Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir, Kristrún Kristjánsdóttir, Margrét Guðný Vigfúsdóttir, Inga Birna Friðjónsdóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir, Lindsey Schwartz, Anna María Baldursdóttir, Rachel Rapinoe.
Byrjunarlið Þórs/KA: Berglind Magnúsdóttir (M), Gígja Valgerður Harðardóttir, Silvía Rán Sigurðardóttir, Karen Nóadóttir, Vesna Smijlkovic, Rakel Hönnudóttir, Mateja Zver, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Bojana Besic, Danka Podovac, Elva Friðjónsdóttir.
Gul spjöld: Mateja Zver (Þór/KA)
Maður leiksins: Inga Birna Friðjónsdóttir (Stjarnan)



