Víkingur – ÍR 2-1
1-0 Helgi Sigurðsson ('52)
1-1 Karl Brynjar Björnsson ('61)
2-1 Marteinn Briem ('72)
Rauð spjöld: Elvar Lúðvík Guðjónsson, ÍR ('67), Haukur Ólafsson, ÍR ('76)
1-0 Helgi Sigurðsson ('52)
1-1 Karl Brynjar Björnsson ('61)
2-1 Marteinn Briem ('72)
Rauð spjöld: Elvar Lúðvík Guðjónsson, ÍR ('67), Haukur Ólafsson, ÍR ('76)
Víkingar eru á góðu skriði um þessar mundir en þeir lögðu ÍR-inga 2-1 í Fossvoginum fyrr í dag. Þó svo að þeir hefðu getað skorað mörg mörk í fyrri hálfleik reyndust mörkin einungis tvö en ÍR-ingar bitu þó frá sér í síðari hálfleik. Eftir leikinn er Víkingur á toppi 1. deildarinnar með 42 stig, Leiknir er með sama stigafjölda í 2. sæti en Þórsarar fylgja fast á eftir með 40 stig.
Þeir rauðklæddu voru sterkari fyrstu mínúturnar. Þeir fengu fljótlega færi en fyrirgjöf Helga ætluð Marteini Briem rataði ekki á hinn síðarnefnda. Skömmu síðar fengu þeir fínt tækifæra til að skora en þá kom hár bolti inn á teiginn sem Halldór Smári skallaði inn á Helga Sigurðsson sem komst einn gegn Þorsteini Einarssyni sem sá við skoti hans.
Aðeins tveimur mínútum síðar voru Víkingar aftur mættir í sókn. Sigurður Egill átti þá lúmska sendingu í teiginn á Martein sem gaf fyrir en Helgi náði ekki til boltans. Víkingar spiluðu fínasta fótbolta fyrstu 30 mínúturnar og var sérstakt að ekkert mark var komið þeirra megin en ÍR-ingar voru í stökustu vandræðum.
Marteinn Briem átti til að mynda góðan sprett upp vinstri kantinn sem endaði með fyrirgjöf ætluð Helga sem náði aftur ekki til boltans.
Á 32. mínútu átti Halldór Smári Sigurðsson góða rispu á miðjunni og gott skot hans fyrir utan teig var varið út á Martein Briem sem spyrnti boltanum í slánna og yfir.
Eins og áður sagði voru heimamenn mun sterkari í fyrri hálfleiknum en staðan var 0-0 og allt gat gerst í þeim síðari.
Þeir rauðklæddu voru ekki alveg mættir til leiks í síðari hálfleik því strax í upphafi komst Björn Viðar Ásbjörnsson einn gegn Magnúsi Þormar sem varði glæsilega frá honum í horn.
Eftir þetta átti Víkingar meira í leiknum og uppskáru loksins mark en þá átti títtnefndur Marteinn Briem frábæran sprett inn í teiginn sem endaði með sendingu fyrir markið þar sem Helgi Sigurðsson var einn á auðum sjó og náði að koma boltanum yfir línuna. Staðan orðin 1-0 fyrir Víkinga.
Aðeins 8 mínútum síðar náðu gestirnir að jafna en þar var að verki Karl Brynjar Björnsson eftir hornspyrnu ÍR-inga. Slæm dekkning hjá heimamönnum.
Á 67. mínútu dró til tíðinda. Elvar Lúðvík Guðjónsson fékk þá að líta sitt annað gula spjald sem gerir rautt eftir harkalega tæklingu á Marteini.
Á 73. mínútu náðu heimamenn að bæta við marki. Víkingar áttu laglegt spil fyrir utan teig gestanna, Kristinn J. Magnússon senti boltann inná teiginn en þar var Marteinn Briem réttur maður á réttum stað og skallaði boltann laglega í netið. Staðan orðin 2-1.
Skömmu síðar fékk Haukur Ólafsson beint rautt fyrir glæfralega tæklingu á miðjunni. Algjör óþarfi og Helgi virtist meiða sig lítillega við þetta en náði þó að halda áfram.
Víkingar hefðu getað bætt við þriðja marki sínu þegar fyrirgjöf kom inn á teiginn á Helga Sigurðsson sem klippti boltann í slánna og yfir.
Gestirnir héldu áfram þrátt fyrir að vera tveimur mönnum færri en heimamenn virtust ekki ná að nýta sér liðsmuninn til góða. Þeir virkuðu frekar þreyttir síðustu mínúturnar en náðu að lokum að innbyrða þrjú stig sem skiptir mestu máli í þessari toppbaráttu sem heldur áfram.
Það má segja að þessi sigur hafi verið verðskuldaður hjá Fossvogspiltum og miðað við færin hefðu mörkin átt að vera fleiri.
Byrjunarlið Víkings: Magnús Þormar – Þorvaldur Sveinn Sveinsson, Milos Milojevic, Egill Atlason, Hjalti Már Hauksson – Kristinn Jóhannes Magnússon, Halldór Smári Sigurðsson (Milos Glogovac 79.), Marteinn Briem – Sigurður Egill Lárusson (Daníel Hjaltason 73.), Helgi Sigurðsson, Viktor Örn Guðmundsson
Varamannabekkur Víkings: Milos Glogovac, Kjartan Dige Baldursson, Tómas Guðmundsson, Walter Hjaltested, Daníel Hjaltason
Byrjunarlið ÍR: Þorsteinn V Einarsson – Elvar Lúðvík Guðjónsson, Karl Brynjar Björnsson, Halldór Arnarsson, Axel Kári Vignisson (Eiríkur Viljar Kúld 85.) – Heimir Snær Guðmundsson, Haukur Ólafsson, Guðjón Gunnarsson (Pétur Óskar Sigurðsson 90.) – Kristján Ari Halldórsson (Tómas Agnarsson 77.), Árni Freyr Guðnason, Björn Viðar Ásbjörnsson
Varamannabekkur ÍR: Ágúst Bjarni Garðarsson, Elías Ingi Árnason, Eiríkur Viljar Kúld, Tómas Agnarsson, Pétur Óskar Sigurðsson




