Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
   lau 04. september 2010 17:27
Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Karl: Við lögðum lítið inn í bankann
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Karl Sigursteinsson þjálfari Breiðabliks var að vonum gríðarlega svekktur eftir 3-2 tap liðsins gegn FH í Pepsi deild kvenna í dag. Búist var við að Blikar ættu auðveldan leik framundan en barátta FH-inga og góð spilamennska tryggði þeim mikilvæg þrjú stig.

„Þetta er bara slök frammistaða. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að við verðum að leggja okkur fram ef við ætlum að vinna fótboltaleiki.“ sagði Jóhannes Karl svekktur eftir leikinn.

„Þær vildu þetta meira en við, það var alveg klárt. Hreyfing á boltalausum mönnum í seinni hálfleik og viljinn til að spila fótbolta var bara ekki til staðar. Þetta er einföld íþrótt, þú setur eitthvað inn í hana og færð eitthvað út úr því. Við fengum bara það sem við settum inn í dag, við lögðum lítið í dag og fengum ekkert úr henni.“

Jóhannes Karl viðurkennir að allt bendi nú til að Valur verði Íslandsmeistari, en þær geta tryggt sér titilinn með sigri á Aftureldingu í leik sem hófst klukkan 17:00.

„Þær taka hann (titilinn) líklega. Það er ekkert í stöðunni lengur, við verðum bara að reyna að klára mótið sómasamlega. Við eigum tvo leiki eftir og annað sætið í sjónmáli,“ sagði Jóhannes Karl.

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner