Birna Berg Haraldsdóttir var að vonum gríðarlega ánægð með 3-2 sigur FH gegn Breiðablik í Pepsi deild kvenna í kvöld.
„Við erum í næstneðsta sæti og við höfum alltaf stefnt að því að halda okkur uppi. Nú þurfum við bara að sýna hvað í okkur býr, við höldum bara áfram,“ sagði Birna við Fótbolta.net eftir leikinn.
„Þetta var aldrei ætlunin, að vera svona neðarlega. Við byrjuðum mótið hægt en í seinni umferðinni höfum við verið að koma svolítið til. Við erum með gott lið í FH og eigum ekki að vera í neðsta sæti.“
Birna er með góða útskýringu á því hvers vegna gengi liðsins hefur tekið stakkaskiptum undanfarið.
„Við fengum fyrirlestur frá manni sem heitir Matti Ósvalds sem talaði um hugarfar. Það er eitthvað sem fékk okkur allar til að hugsa og við horfum bara fram á við og erum ekkert að pæla í því hvað gerðist fyrr í sumar. Við höfum fengið alls konar fólk til að tala við okkur og höfum bara tekið hausinn í gegn, og hér erum við,“ bætti hún við.
FH stúlkur gerðu með þessum sigri út af við vonir Breiðabliks í titilbaráttunni, en Valur mun að öllum líkindum hampa Íslandsmeistaratitlinum síðar í dag. Birna kveðst ekki hafa pælt mikið í því.
„Við verðum örugglega ekki á jólakortalistanum hjá þeim í vetur, en við erum bara að hugsa um okkur sjálfar. Okkur er alveg sama hvað er að gerast á toppnum, við bara hugsum um okkur,“ sagði hún.
Viðtalið við Birnu má sjá í heild sinni hér að ofan.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |






















