Daníel Þór Midgley
BÍ/Bolungarvík 4 - 2 Víðir:
1-0 Jónmundur Grétarsson
2-0 Jónmundur Grétarsson
2-1 Daníel Ómar Frímannsson.
3-1 Andri Bjarnasson
4-0 Óttar Bjarnasson
4-2 Þorsteinn Þorsteinsson
1-0 Jónmundur Grétarsson
2-0 Jónmundur Grétarsson
2-1 Daníel Ómar Frímannsson.
3-1 Andri Bjarnasson
4-0 Óttar Bjarnasson
4-2 Þorsteinn Þorsteinsson
Bí/Bolungarvík fékk Víðir frá Garði í heimsókn á Skeiðisvelli í Bolungarvík í 2. Deild í dag.
Með sigri fóru BÍ/Bolungarvík upp í 1. Deild á næstu leiktíð, enn gestirnir þurftu nauðsynlega á stigum að halda enn þeir sitja i næst neðsta sæti deildarinnar í mikilli fallbaráttu með ÍH.
Bæði lið komu tibúin til leiks og fyrstu 10 mínutur var jafnt á með liðunum á öllum stöðum, þegar líða fór á leikinn fóru heimamenn að halda boltanum betur og Víðir voru aftarlega á vellinum, hvorugt lið náði hinsvegar að skapa sér góð marktækifæri og markmenn liðanna þurftu ekki að gera mikið fyrsta hálftimann.
Á 33 mínutu kom fyrsta alvöru marktækifæri leiksins og voru það heimamenn sem fengu það, Óttar Kristinn Bjarnarson fékk þá boltann á hægri kantinum og gaf á Arnar Þór Samúelsson sem stakk boltanum inn fyrir vörn gestanna á Jónmund Grétarsson sem lék á varnarmenn og setti boltann í netið og kom BÍ/Bolungarvík yfir.
Á lokamínutu fyrri hálfleiks fengu Víðir aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateyg heimamanna og settu Víðir nánast sína alla menn inní teig, boltinn var hreinsaður og Andri Rúnar Bjarnarson og Þorsteinn Þorsteinsson fóru i spretthlaup nánast upp allann völlin í átt að boltanum, Andri stakk Þorstein af og var kominn einn á móti Henrik Bödker markmanni Víðis sem sá við Andra enn boltinn barst á Jónmund Grétarsson sem skoraði annað mark BÍ/Bolungarvíkur og annað mark sitt.
Frábærlega gert hjá Andra Rúnari sem hefði heldur betur átt skilið að skora eftir þennan ótrúlega sprett.
Í byrjun seinni hálfleiks létu Víðir vita af sér í leiknum enn strax á annarri mínutu seinni hálfleiks minnkuðu þeir munin. Þeir fengu aukaspyrnu á vinstri vængnum og úr aukaspyrnunni kom mikið klafs i teignum og Daníel Ómar Frímannsson potaði boltanum inn af stuttu færi. 2-1 og leikurinn langt frá því að vera búinn. Þetta mark náði þó ekki að kveikja nógu vel í gestunum því heimamenn náðu fljótt aftur tveggja marka forystu.
Óttar Kristinn Bjarnarson fékk þá boltann inní teig fór upp að endamörkum og rendi boltanum á Andra Rúnar Bjarnarson sem átti ekki i erfiðleikum með að koma boltanum framhjá Henrik sem átti heldur betur eftir að koma við sögu i þessum leik.
Eftir þriðja mark Bí/Bolungarvík tóku heimamenn öll völd á vellinum, bræðurnir Andri og Óttar fengu sitthvort færið enn báðir skutu þeir framhjá marki Víðis.
Á 75. mínútu fengu BÍ/Bolungarvík hornspyrnu sem fyrirliðinn Emil Pálsson tók Víðismenn náðu ekki að hreinsa boltann og Hafþór Atli Agnarsson varnarmaður BÍ/Bolungarvíkur átti fastann skalla í stöng og þaðan fór boltinn fyrir fætur Óttars Bjarnarsonar sem átti auðvelt verk fyrir höndum og skoraði fjórða mark heimamanna og sæti í 1. Deid nánast öruggt.
Gestirnir náðu þó að skora síðasta mark leiksins þá átti Goran Lukic sendingu innfyrir vörn BÍ/Bolungarvík á Þorstein Þorsteinsson sem sá Róbert Örn Óskarsson markmann BÍ/Bolungarvík framarlega í teignum og vippaði boltanum yfir hann og í markið, enn þetta var full seint og aðeins 9 mínutur til leiksloka.
Á 88 mínútu sauð allt uppúr á Skeiðisvelli, Gísli Örn Gíslason braut þá harkalega á Óttari Bjarnarsyni og eftir það voru einhverjar stimpingar sem leystust þó á endanum..
Þegar síðustu sekúndur voru að líða þá fóru áhorfendur að fagna 1. Deildarsætinu með blysum og voru mikill fagnaðarlæti þegar dómarinn flautaði leikinn af. Þetta var verðskuldaður sigur BÍ/Bolungarvík og eftir aðeins 2 tímabil frá því að þeir komust upp úr 3. Deild þá munu þeir spila í 1. Deild á næstu ári.
