Jón Þór Brandsson þjálfari FH var að vonum ánægður með 3-2 sigur liðsins á Breiðablik í Kaplakrikanum í dag.
„Þetta var stórskemmtilegt andartak, þegar dómarinn flautaði af. Við náðum sigri og ég held að það hefðu ekki margir átt von á þessu fyrir leikinn. Við vorum búin að leggja það upp að við gætum náð að vinna þetta Blikalið, við höfum vaxið með sumrinu og við ákváðum að láta virkilega reyna á það í dag, hvort við næðum ekki stigi,“ sagði Jón Þór við Fótbolta.net eftir leikinn.
„Okkur vantaði tvo leikmenn sem hafa spilað stórt hlutverk undanfarnar vikur, bæði Aldísi Köru og Söru Atladóttur. En það má kannski segja að sigurinn sé ennþá sætari, auðvitað eru alltaf forföll í deild á borð við efstu deild kvenna og við þurfum að vera tilbúin í svona baráttu. Liðið var það, það kom bara maður í manns stað.“
Viðtalið við Jón Þór má sjá í heild sinni hér að ofan.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
























