Gísli Þór Þórarinsson skrifar úr Njarðvík
Njarðvík 0 - 2 Þróttur R
0-1 Muamir Sadikovic (Vítaspyrna)
0-2 Vilhjálmur Pálmason
0-1 Muamir Sadikovic (Vítaspyrna)
0-2 Vilhjálmur Pálmason
Það blés allhressilega með úrkomu á Njarðtaksvellinum þar sem Þróttur R kom í heimsókn.
Fyrsta færið átti Andri Fannar Freysson fyrir heimamenn eftir sendingu frá Kristni Erni Agnarssyni inn í teig. Ísak Örn Þórðarsson komst upp að endamörkum kom boltanum inn í í markteig þar sem Kristinn var staðsettur með markið í bak. Kristinn hélt boltanum undir pressu og lagði boltann á Andra sem skaut framhjá markinu.
Muamer Sadikovic gerði vel fyrir Þrótt þegar að hann komst að miðjum vallarhelmingi Njarðvíkur. Sadikovic átti fína stungusendingu á milli varnarmanna Njarðvíkur en Ingvar Jónsson var vel staðsettur og kom tímanlega út á móti og handsamaði knöttinn.
Muamer var svo óheppinn að koma Þrótturum ekki yfir þegar að hann fékk boltann á horni markteigs hægra megin, snéri sér við en skotið hátt yfir. Illa farið með annars kjörið marktækifæri.
Þróttararnir lágu framarlega með rokið í bakið og það lá í loftinu að Njarðvíkingar þyrftu að standa undir pressu gestanna.
Njarðvíkingar sóttu að marki gestana á 16.mínútu en gekk illa að koma boltanum að marki. Þróttarar unnu boltann og þeystust upp í skyndisókn en skot þeirra fyrir utan teig fór framhjá markinu.
Stuttu síðar áttu Þróttarar skot úr upplögðu tækifæri við vítateig en varnarmenn heimamanna fórnuðu sér fyrir boltann og komu honum í burt.
Þróttarar skoruðu mark á 20 mínútu eftir mikinn barning í vítateig Njarðvíkur en markið var dæmt af að brotið var á Marko Valdimar Stefánssyni.
Þróttarar sóttu stíft eftir markið en Njarðvíkingar hefðu hæglega getað komist yfir á 27.mínútu þegar að Ísak Örn Þórðarsson fékk stungusendingu innfyrir vörn Þróttara en Ísak missti jafnvægið og skot hans fór langt framhjá markinu.
Þróttarar héldu pressunni áfram en Ingvar Jónsson var vel á verði ásamt skipulagðri vörn Njarðvíkinga sem Þróttarar náðu ekki að brjóta á bak þrátt fyrir mikinn meðvind í bakið.
Njarðvíkingar áttu eina og eina sókn inn á milli og á 42.mínútu komst Viktor Guðnason inn í teig utarlega vinstra megin en Erlingur Guðmundsson fyrirliði Þróttara náði að renna sér fyrir boltann og kom boltanum aftur fyrir endalínuna. Njarðvíkingar fengu hornspyrnu sem ekkert varð úr.
Þrátt fyrir sóknartilburði Þróttara náðu þeir ekki að setja mark á heimamenn og staðan 0-0 í þegar að liðin héldu til búningsherbergja.
Njarðvíkingar fengu sannkallað dauðafæri á 49.mínútu eftir að varnarmenn Þróttara mistókst að skalla boltann frá en rokið átti þar inngrip og Kristinn Örn Agnarsson komst innfyrir vörnina og lyfti boltanum á Ísak Örn Þórðarsson sem skaut viðstöðulausu skoti á markið en Haraldur Björnsson kom út á móti og varði vel.
Þróttarar fengu vítaspyrnu á 54.mínútu eftir að brotið var á Milos Tanasic. Muamer Sadikovic steig á punktinn og lagði boltann í vinstra hornið framhjá Ingvari í markinu.
Leikurinn snérist við í seinni hálfleik og heimamenn miklu meira með boltann en til að byrja með gekk erfiðlega að skapa sér færi.
Þróttarar fengu svo fínt færi á 65.mínútu þegar að Halldór Arnar Hilmisson átti fékk boltann við markteig alveg úti vinstra megin með markið í bakið, gerði vel í að snúa sér og ná skoti en Ingvar Jónsson gerði einnig vel og varði.
Njarðvíkingar fengu svo aukaspyrnu við vítateig á 67.mínútu eftir að brotið var á Ólafi Jóni Jónssyni. Kristinn Björnsson tók aukaspyrnuna sem var slöpp og fór framhjá markinu.
Njarðvíkingar fengu svo hornspyrnu á 75.mínútu eftir að varnarmaður náði að fara fyrir sendinu Ólafs Jóns og aftur fyrir. Þróttarar náðu að hreinsa boltann út úr teig þar sem heimamenn unnu hann aftur. Marko Valdimar Stefánsson fékk svo boltann en skot hans fór framhjá.
Mehmet Mehmet átti svo fínt skot fyrir utan teig rétt eftir á en skot hans í hliðarnetið.
Viktor Guðnason átti svo skot sem fór í varnarmann og aftur fyrir markið. Mehmet sýndi svo flotta tilburði með bakfallsspyrnu en hitti boltann ekki nógu vel. Kristinn Björnsson var þó vel vakandi lét vaða á markið en þéttur varnarmúr gestanna var fyrir. Njarðvíkingar lágu á gestunum líkt og gestirnir í fyrri hálfleik sem áttu eina og eina sókn inn á milli.
Gestirnir bættu svo öðru marki við á 89.mínútu. Halldór Arnar Hilmisson fékk boltann innfyrir vörnina og lagði hann til hliðar á Vilhjám Pálmason sem setti boltann inn í autt markið. Mjög óeigingjarnt af Halldóri og reyndar það eina í stöðunni þar sem Ingvar var mættur út á móti honum og lítið annað að gera en að senda boltann á Vilhjálm sem var á auðum sjó.
Halldór Breiðfjörð flautaði svo leikinn af á 94. mínútu og gestirnir fóru með 3 stig í farteskinu í höfuðborgina.

